Flugvélarmótor féll á íbúðarhús

Bandarísk flutningavél missti mestan hlutann af öðrum mótornum nokkrum mínútum eftir flugtak í Brasilíu. Mótorhlutarnir lentu á 22 húsum og nokkrum bílum í bænum Manaus.

Enginn slasaðist vegna óhappsins en húsin skemmdust mikið. Flugmennirnir slökktu á mótornum og gátu haldið áfram ferð sinni til Kólumbíu þar sem þeir lentu heilu og höldnu.

Félagið Arrow Cargo í Flórída, sem á fraktvélina, hefur lofað að greiða fyrir allar skemmdirnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert