Beit tungu kærasta síns af

Bresk kona, Tracy Davies, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi eftir að hafa bitið af tungu kærasta síns. Parið var að fagna 45 ára afmæli mannsins með því að drekka tvær flöskur af vodka og ákvað Davies að gefa kærastanum ógleymanlegan koss.

Davies og kærastinn, Mark Coghill, kynntust gegnum einkamálaauglýsingar. Davies var í uppnámi þar sem hana langaði í barn en var ekki ófrísk. Þegar Coghill reyndi að hughreysta hana sagðist hún elska hann og bað um koss.

Skömmu síðar breyttist hún hinsvegar í „algert skrímsli,“ að því er Coghill sagði síðar við réttarhöldin. Hún beit fast í tungu hans og náði að bíta af fremsta hlutann. Svo hrækti hún honum í gólfið. Coghill sagði að Davies hefði í kjölfarið látið frá sér ánægjustunu, „líkt og ef maður fær sér tebolla eftir að hafa ekki fengið sér te í nokkra daga.“ Þá sagði Coghill að Davies hafi breyst á svipstundu frá því að vera ljúf og góð yfir í að verða „eins og Mike Tyson.“ Eins og margir muna beit Mike Tyson hluta af eyra Evander Holyfield árið 1997.

Dómarinn sagði Davies hafa hagað sér eins og dýr og væru meiðsl Coghill ógeðfelld. Ekki var hægt að sauma tunguhlutann aftur við tungu Coghill þar sem sýkingarhættan þótti of mikil.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert