Jacqui Smith svarar fyrir sig
Jacqui Smith, innanríkisráðherra Bretlands, segist ekki hafa íhugað að segja af sér vegna klámmynda sem eiginmaður hennar og skrifstofustjóri rukkaði embætti hennar fyrir. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.
Smith segir í viðtali við Sky að málið hafi verið mjög vandræðalegt, rangt og að um mistök hafi verið að ræða en eiginmaður hennar Richard Timney, keypti aðgang að myndunum tveimur á heimili þeirra er hún var ekki heima. Hann sendi síðan reikning fyrir þeim með reikningum vegna reksturs skrifstofu hennar.
„Ég hef sagt að mér þyki þetta leiðinlegt en ég tók þá ákvörðun að halda áfram í starfi,” segir hún í viðtalinu.
Fjármál Smith hafa verið mjög til umræði í breskum fjölmiðlum eftir að uppvíst varð um málið og hefur m.a. verið greint frá því að hún hafi þegið 150.000sterlingspunda styrk vegna viðhalds á heimil sínu í Redditch.
Auk þess þiggur hún styrk til heimilishalds í London en þar er hún skráð til heimilis hjá systur sinni.Smith segir í viðtalinu að þær upplýsingar sem birtar hafi verið um kostnað vegna heimilishalds hennar séu ekki allar kostar réttar og hvetur til þess að húsnæðiskostnaður allra ráðherra verði gerður opinber.
Hún neitar hins vegar að greina nánar frá eigin kostnaði og segist ekki sjá neitt athugunarvert við það að ráðamenn fái greiddan húsnæðiskostnað.
„Ég lít ekki svo á að það sé neitt rangt við það. Ef við viljum að fólk, sem ekki á fyrir tvö heimili, taki við ráðherraembættum, verðum við að gera fólki það kleift,” segir hún
„Það sem ég hef farið fram á að fá greitt er hóflegur kostnaður sem tengist því að búa á tveimur stöðum. Ég tel sanngjarnt að ég fái hann greiddan.”
Þá segir hún rangt að hún hafi krafið ríkið um ofreiknaðan kostnað vegna reksturs heimilis systur sinnar: „Ég bý með systur minni. Við deilum húsi og kostnaðinum við það. Við borðum saman og búum saman í húsinu. Þetta er eitt af því sem hefur verið rangtúlkað. Ég er ekki bara með kassa uppi á háalofti," segir hún.
Geoff Hoon, flutningamálaráðherra Bretlands, og Alistair Darling fjármálaráðherra sæta nú einnig gagnrýni vegna risnukostnaðar og annarra opinberra útgjalda og hefur Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands falið siðanefnd þingsins að fara yfir útgjöld opinberra starfsmanna í tengslum við mál ráðherranna.
Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 30. mars 2009, Erlent Óvíst um framtíð ráðherra vegna klámmynda
- Þriðjudagur, 2. júní 2009, Erlent Jacqui Smith vill skipta um ráðuneyti
- Sunnudagur, 29. mars 2009, Erlent Skattborgarar rukkaðir fyrir klámmyndir
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Þriðjudagur, 24. mars 2009, Erlent Fá almenning með gegn hryðjuverkum
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































