Tryggja öryggi á flugvöllum og höfnum

Frá Taílandi í morgun stækka

Frá Taílandi í morgun Reuters

Stjórnvöld í Taílandi ætla að tryggja öryggi á helstu flugvöllum og höfnum landsins, að sögn talsmanns ríkisstjórnarinnar en stjórnvöld reyna nú að brjóta á bak aftur uppreisn stjórnarandstæðinga. Segir hann að á næstu klukkustundum verði gripið til aðgerða til þess að tryggja öryggi innviða taílensks þjóðfélags. Talsmaðurinn, Panitan Wattanayagorn, segir alvanalegt að gripið sé til aðgerða þegar neyðarástandi hefur verið lýst yfir en öryggisgæsla hefur verið aukin til muna á flugvöllum og höfnum.  Stjórnvöld í Taílandi lýstu yfir neyðarástandi í gær í Bankok og nágrenni borgarinnar þar sem þúsundir mótmælenda hafa krafist afsagnar forsætisráðherranns, Abhisit Vejjajiva. Eru það einkum stuðningsmenn Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, sem hafa staðið fyrir mótmælunum. Thaksin, sem er í útlegð hefur boðað að hann muni jafnvel snúa aftur heim til þess að stýra byltingu stjórnarandstæðinga. Thaksin var á síðasta ári dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir spillingu en honum var steypt af stóli í valdaráni hersins fyrir rúmum tveimur árum.

Abhisit Vejjajiva, sem áður var einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Taílandi var í desember kjörinn forsætisráðherra landsins, sá fimmti á tveimur árum. Abhisit er yngsti forsætisráðherrann í sögu landsins. Hann er 44 ára, fæddist í Bretlandi og er með MA-próf í hagfræði frá Oxford-háskóla. Að sögn fréttaskýranda BBC er Abhisit óflekkaður af spillingu og hagsmunaárekstrum, sem sé fáheyrt í taílenskum stjórnmálum, þótt hann hafi setið á þingi í 16 ár.

„Við viljum upplýsa ykkur um að ókyrrðin í Taílandi er að baki og stjórnvöld hafa hemil á ástandinu, sagði Panitan í sjónvarpsávarpi í morgun á sama tíma og hermenn brutu niður mótmæli í höfuðborginni.

Samkvæmt upplýsingum frá flugvallaryfirvöldum í Bankok hefur lögreglu verið fjölgað á vallarsvæðinu og öryggisráðstafanir auknar. Engar tafir eru á flugi til og frá landinu í gegnum Bankok. Á síðasta ári brutust út mótmæli á flugvellinum í Bankok og lá allt millilandaflug niðri um hann í níu daga á þeim tíma.

Samkvæmt upplýsingum frá fréttaritara BBC í Bankok taka um fimm hundruð hermenn þátt í aðgerðum gegn mótlendum í borginni. Hafa þeir reynt að opna helstu leiðir um borgina með því að reka mótmælendur í burtu með góðu og illu. Hafa mótmælendur svarað með því að kasta bensínsprengjum og ekið strætisvögnum á hermenn sem hafa raðað sér upp.

Tugir hafa særst í átökunum í morgun en ekki liggur nákvæmlega fyrir hve margir þeir eru. Þúsundir mótmælenda eru fyrir utan þinghúsið og neita að að yfirgefa svæðið fyrr en Abhisit segir af sér. Hann hefur hins vegar beðið þjóðina að taka ástandi mála með ró og segir að stjórnvöld hafi stjórn á ástandinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »
Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
Í gær, 15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
Í gær, 14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
Í gær, 13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
Í gær, 14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
Í gær, 14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden myndskeið

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
Í gær, 12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kertastjakar til sölu
Tveir leir kertastjakar eftir listakonuna Rannveigu til sölu. Tilboð óskast. U...
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
Barstólar
Til sölu 2 nýlegir barstólar. Tilboð óskast. Uppl. í síma 863-7879 eftir kl. ...
2010 TOYOTA LANDCRUSIER GX
Toyota Landcrusier 150 GX. Sjsk. Diesel, Ekinn 36.000. 2010 árgerð. Fallegur o...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...