Beit framan af eigin lim

Dæmdur kynferðisafbrotamaður var fluttur með hraði á sjúkrahús í Brooklyn í New York eftir að hann fannst nakinn og blóðugur bakvið byggingu í hverfinu. Kom í ljós að hann hafði bitið framan af lim sínum.

Að sögn bandarískra fréttamiðla er ekki vitað hvað manninum gekk til eða um líðan hans.

Maðurinn sem er 26 ára var dæmdur árið 2004 fyrir að nauðga þrettán ára stúlku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert