Réttarhöld hafin í Mumbai
Maður sem sagður er vera eini eftirlifandi tilræðismaðurinn í hryðjuverkunum í Mumbai á Indlandi dró játningu sína í málinu til bakavið upphaf réttarhaldanna yfir honum í morgun. Segir lögfræðingur hans hann hafa verið beittan harðræði til að þvinga fram játninguna. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Réttarhöld í málinu hófust í morgun, eftir nokkurra daga tafir, en Qasab er ákærður fyrir morð á 166 einstaklingum og árás á Indland. Hann á dauðadóm yfir höfði sér verði hann fundin sekur.
Við upphaf réttarhaldanna las Ujwal Nikam, saksóknari í málinu, upp hluta játningar hans. Þá sagði hann tilræðin hafa verið hugsuð sem árás Pakistana á Indland.
Maðurinn, Mohammed Ajmal Amir Qasab, er frá Pakistan og hefur aðild hans að málinu skapað mikla spennu í samskiptum Indlands og Pakistan.
Nikam sagði m.a. í opnunarræðu sinni að jafnvel þótt Qasab hafi ekki verið viðstaddur er til skotbardaga kom á hótelunum Taj og Trident og í Nariman menningarmiðstöðinni geti hann talist ábyrgur fyrir gerðum samverkamanna sinna. Þá sagði hann tilræðismennina hafa notið aðstoðar leyniþjónustumanna og að háttsettur hershöfðingi hanfi verið viðstaddur þjálfun þeirra. Hann nefndi hins vegar Pakistan aldrei í ræðu sinni.
Abbas Kazmi, nýr lögfræðingur Qasab, lagði í morgun fram umsókn um að réttað yrði yfir honum fyrir ungmennadómstól en því var hafnað. Þá lagði hann fram kröfu um að játning hans verði dregin til baka sem sönnunargagn. Dómari hefur ekki enn úrskurðað í því máli.
Fyrri lögfræðingur Qasab var rekinn á miðvikudag eftir að fréttist að hann væri einnig lögfræðingur eins af fórnarlömbum árásarmannanna.
Indverjarnir Fahim Ansari og Sabauddin Ahmed eru einnig fyrir rétti vegna málsins en þeir eru ákærðir fyrir að tilheyra samtökunum Lashkar-e-Taiba sem stóðu á bak við árásirnar.Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 23. júlí 2009, Erlent Réttarhöld halda áfram í Mumbai
- Föstudagur, 24. apríl 2009, Erlent Hryðjuverkamaðurinn undir lögaldri?
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Mánudagur, 3. maí 2010, Erlent Árásarmaður sakfelldur
- Laugardagur, 21. mars 2009, Erlent Pakistanar komu að árásunum
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































