Eru viðbúnir skotárásum
Mikil sorg ríkti í þýska smábænum Winnenden eftir að skólapiltur skaut þar og drap 15 samnemendur og kennara í síðasta mánuði. Reuters
Danska lögreglan hefur gert áætlun um hvernig bregðast skuli við skotárásum í skólum, á borð við þær sem í tvígang hafa orðið í Finnlandi og í bandaríska Colombine skólanum fyrir tíu árum.
Danir horfast nú í augu við það að árásir þar sem skólanemar ráðast til atlögu gegn samnemendum sínum með skotvopnum verða ekki eingöngum í Bandaríkjunum. Slík árás var gerð í Danmörku árið 1994 þegar 35 ára karlkyns stúdent drap tvo og særði fjölda manns í skotárás í háskólanum í Árósum. Maðurinn framdi svo sjálfsmorð í framhaldinu. Nýleg dæmi frá Finnlandi og Þýskalandi sanna að slíkt getur gerst aftur en í síðasta mánuði drap skólapiltur í Þýskalandi 15 nemendur og kennara í skólanum sínum.
Danskir lögreglumenn eiga því nú að sækja sér kennslu í því hvernig best er hægt að bregðast við skotárásum sem þessum, að því er fram kemur í frétt Berlingske tidende. Þjálfunin er liður í nýrri viðbragðsáætlun Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn.
Ástæða þess að slík áætlun hefur ekki verið til fyrr en nú er að sögn lögregluvarðstjórans Jørgen Harlev sú að hingað til hafi verið taldar takmarkaðar líkur á skólaskotárás af þessu tagi. Hann vill þó ekki meta hættuna á því að slíkt gerist í Danmörku. „Ég trúi því ekki að nokkur maður geti gefið fullnægjandi svar við því. En ef maður hefði spurt Finnana um hið sama hefðu þeir varla séð fyrir harmleikina sem þar urðu."
Samhliða áætlun lögreglu og spítalans starfa tveir vinnuhópar í Menntamálaráðuneytinu að því að búa til forvarnaáætlun gegn skólaskotárásum. Þrátt fyrir að mikil leynd hvíli yfir þessari áætlun hefur Berlingske Tidende upplýsingar um að í henni verði mælt með ýmsum breytingum, sem m.a. eiga að tryggja að skólarnir komi sér upp skýru viðvörunarferli og uppgötvi frekar hugsanlega árásarmenn áður en þeir láti til skarar skríða.
Bloggað um fréttina
-
Erna Hákonardóttir Pomrenke Ekki má gleyma skotárásinni í Va.Tech og nýlega var nemandi ...
Erlent »
- Banna eyrnastýfingu hunda
- Bannað að biðja á bæjarráðsfundum
- Vilja handtaka fulltrúa AGS
- Fyrirtækin slást um verkfræðingana
- Risaháfur á land
- Ævisaga Pútíns skyldulesning
- Átök á götum Aþenu
- Refsilaus mynd með nasistafána
- Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku
- Vill herskyldu fyrir konur
- Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð
- Ungir Rússar taka eigið líf
- Fraus í hel
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
-
260 dauðir höfrungar á land
- Leitað að lausn á Maldíveyjum
- Hældi Breivik á Facebook
- Dönsk ungmenni vilja ekki í sturtu
-
Áframhaldandi ógnaröld í Homs
- Grikkjum sett hörð skilyrði
- Kvenhermenn nær vígvellinum
Fimmtudagur, 9.2.2012
-
Undirbúa olíudælingu úr skipinu
- Átta ára barn meðal látinna
- Leyfa fyrsta kjarnorkuverið frá 1978
- Ætla ekki að færa andstöðunni vopn
- Borin kennsl á 162 lík
- Leggja fram kvörtun hjá SÞ
- Mossad þjálfar andófsmenn í Íran
- Verkalýðsfélög boða verkföll
- Færri fæðingar í Danmörku
- Garzón sakfelldur
- Rússar efins um þjóðabandalag
- Grikkir hafa náð niðurstöðu
- Dóná ísilögð í sex löndum
-
Mannskæð bílsprengja í Taílandi
- Slóvakar styðja Grikki ekki frekar
- Myrti stuðningsfulltrúa í Danmörku
- Cameron vill læra af Íslandi
-
Handtekinn forseti kom til Íslands
-
Bygging stóðst ekki kröfur
- Breivik var tölvuleikjasjúkur
- Hópnauðgun vekur deilur í Mósambík
- Skotmaðurinn er tvítugur
- Foringi Al-Qaeda í Pakistan látinn
- Ástralskir neita leynifangelsi
- Fjölskylda forsetans flúin
- Fimm konur drepnar af hlébarða
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 15. mars 2009, Erlent Kröfuganga fyrir hversdeginum
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Erlent Tala látinna hækkar á Indlandi
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Erlent S&P varar skuldsett ríki við
- Fimmtudagur, 18. september 2008, Erlent Skortur á skuggaefni veldur áhyggjum
- Mánudagur, 9. mars 2009, Erlent Fjallað um yfirtöku Straums í Danmörku og Bretlandi
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?




































