Fólk þusti út úr byggingum
Fólk þusti út úr skrifstofubyggingum á Manhattan í dag þegar Boeing 747 þota forseta Bandaríkjanna flaug lágt yfir suðurenda Manhattan og Hudson-ána í New York. Flug risaþotunnar vakti ugg um að atburðir 11. september 2001 væru að endurtaka sig. Hvíta húsið hefur nú beðist afsökunar á fluginu.
Þotan flaug í fylgd lágfleygra orrustuþotna með tilheyrandi þotugný í um hálftíma í námunda við Manhattan. Embættismenn útskýrðu flugið svo að það hafi verið vegna ljósmyndatöku. Forsetinn var ekki um borð í flugvélinni.
Hvíta húsið gaf út afsökunarbeiðni í dag vegna flugsins. Louis Caldera, yfirmaður herskrifstofu Hvíta hússins, sagði í yfirlýsingu vegna ljósmyndaflugsins að að þrátt fyrir að yfirvöld alríkisins hafi gert yfirvöldum ríkisins og New York borgar og New Jersey viðvart eftir eðlilegum leiðum sé ljóst að leiðangurinn hafi valdið ringulreið og truflun.
Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, sagði að hann hafi ekki verið látinn vita að flugið stæði til og kallaði skort á upplýsingagjöf „fáránlega og bera vott um dómgreindarskort“.
Skelfingu lostið skrifstofufólk sem áttaði sig ekki á merkingum á forsetaflugvélinni óttaðist að atburðir 11. september 2001 væru að endurtaka sig. Sem kunnugt er flugu tvær farþegaþotur þá á tvíburaturnana og létust nærri þrjú þúsund manns í árásunum.
„Ég sá að allir voru á hlaupum og ég hljóp líka út. Ég er enn með hjartslátt,“ sagði Jurgens Bauer sölumaður. Skrifstofan hans er gluggalaus svo hann sá ekki flugvélina, en sagði að skelfingin hafi verið mjög raunveruleg.
„Ég var þarna 11. september og sá þúsundir deyja. Mér líkar ekki að vera ekki látinn vita af ljósmyndaflugi hersins,“ sagði hann.
Lögreglan staðfesti að skrifstofur hafi verið rýmdar en tilgreindi ekki hve margar. „Ég reikna með að fólk hafi verið hrætt,“ sagði talsmaður lögreglunnar.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason FÁRÁNLEG HUGMYND HJÁ ÖRYGGISSÉRFRÆÐINGUM HVÍTA HÚSSINS AÐ BANNA AÐ SEGJA ...
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 8. maí 2009, Erlent Ráðgjafi í Hvíta húsinu segir af sér
- Laugardagur, 4. júlí 2009, Erlent Frelsisstyttan opnuð eftir 11. september
- Þriðjudagur, 5. ágúst 2008, Erlent Sakar Hvíta húsið um að falsa tengsl Íraks og 11. september
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Erlent Fyrirskipar rannsókn á lágflugi
- Sunnudagur, 15. nóvember 2009, Erlent Giuliani gagnrýnir staðsetningu réttarhalda
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































