Bandarískur öldungadeildarþingmaður skiptir um flokk

Arlen Specter.
Arlen Specter. AP

Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Arlen Specter hefur lýst því yfir, að hann sé genginn úr Repúblikanaflokknum og til liðs við Demókrataflokkinn. Þetta þýðir að demókratar ráða 59 þingsætum af 100 í þingdeildinni.

Demókratar þurfa 60 þingsæti til að koma í veg fyrir, að repúblikanar geti stöðvað lagafrumvörp. Búist er við að það gerist þegar niðurstaða fæst fyrir dómstólum um úrslit þingkosninganna í Minnesota. 

Specter, sem er hófsamur miðjumaður, segir að frá því hann gekk í Repúblikanaflokkinn árið 1980 hafi flokkurinn færst langt til hægri. Nú eigi hann mun meiri samleið með demókrötum.  Hann segist þó ekki munu fylgja flokknum í öllum málum frekar en hann hafi gert sem repúblikani. 

57 þingmenn Demókrataflokksins sitja nú í öldungadeildinni. Tveir óháðir þingmenn fylgja flokknum einnig að málum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert