Aukinn viðbúnaður í Mexíkóborg

Mexíkósk mæðgin á götum Mexíkóborgar nota hlífðargrímur til þess að verjast svínaflensusmiti. stækka

Mexíkósk mæðgin á götum Mexíkóborgar nota hlífðargrímur til þess að verjast svínaflensusmiti. DANIEL AGUILAR

Yfirvöld í Mexíkóborg hafa bannað kaffihúsum og veitingastöðum að selja mat til neyslu á sölustöðum sínum, nema viðskiptavinir taki matinn með sér. Þetta er liður í því að reyna að hindra frekari útbreiðslu svínaflensu þar í borg. Frá þessu er greint á fréttavef BBC. 

Allir skólar í gjörvallri Mexíkó eru lokaðir sem og kirkjur, takmörk sett á fundarhöld og vinsælum áfangastöðum ferðamanna hafa verið lokaðir. Jose Angel Cordova, heilbrigðisráðherra landsins segir grunur leika á að 159 manns hafi látið lífið í landinu af völdum svínaflensu, en opinberu staðfestu tölurnar lækkuðu í gær úr tuttugu í sjö. Alls er talið að tæplega 2.500 manns hafi smitast og enn dvelja um ríflega 1.300 á spítala vegna veikinda sinna. 

Fjöldi hugsanlegra smita hefur hækkað hratt á heimsvísu að undanförnu, en enn hefur enginn utan Mexíkó látið lífið vegna veirusmitsins. 

Sameinuðu þjóðirnar  hafa hvatt þjóðir heims til þess að yfirfara viðbragðsáætlanir sínar við hugsanlegum heimsfaraldri. 

Yfirvöld í Mexíkóborg segja ráðstafanir þær, sem gripið hefur verið til þar í borg í varúðarskyni, kosta fyrirtækin þar um 777 milljón pesós eða sem samsvarar sjö milljörðum á dag. 

Í gær var frá því greint að hugsanleg smit hefðu komið upp á Norðurlöndunum. Á vef danska dagblaðsins Politiken kemur í dag fram að enginn þeirra tólf Dana, sem taldir voru smitaðir, reyndust vera svo í reynd. Á sama vef er greint frá því að utanríkisráðherra Svíþjóðar hafi ráðlagt fólki frá því að ferðast til Mexíkó vegna flensunnar. Utanríkisráðherra Danmerkur vill ekki ganga jafnlangt og sænski starfsbróðir hans. 

Auk hinns sjö staðfestra tilfella Svínaflensunnar í Mexíkó hafa 64 tilfelli verið staðfest í Bandaríkjunum, 13 í Kanada, þrjú á Nýja sjálandi og tvö tilfelli í Bretlandi, á Spáni og í Ísrael. Grunur leikur á um að flensan hafi greinst í Brasilíu, Gvatemala, Perú, Ástralíu, Suður-Kóreu og sjö Evrópusambandslöndum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »
Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
Í gær, 15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
Í gær, 14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
Í gær, 13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
Í gær, 14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
Í gær, 14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden myndskeið

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
Í gær, 12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
Glæsilegt sumarhús í Borgarfirði til leigu
Glæsilegt heilsárshús til leigu 11km norður af Borgarnesi. Stutt í frábærarar ná...
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
Sirius Hundasnyrting, Hundaheim Mosfellsbæ
Tökum allar gerðir hunda í snyrtingu - Persónuleg þjónusta og frábær verð, gerið...
 
Útboð hólmavíkurhöfn

STRANDABYGGÐ Útboð Hólmavíkurhöfn...
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...