Berlusconi krefst afsökunarbeiðni
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, krafðist þess í dag í blaðaviðtali, að Veronica Lario, eiginkona hans, biðjist opinberlega afsökunar á ýmsum ummælum, sem hún hefur látið falla um hann að undanförnu.
„Veronica verður að biðjast opinberlega afsökunar," hefur blaðið Corriere della Sera eftir honum í dag. „Og ég veit ekki einu sinni hvort það dugar."
Lario sagði í viðtölum um helgina að hún ætlaði að krefjast skilnaðar frá eiginmanni sínum. Í síðustu viku birti hún opið bréf til Berlusconis þar sem hún gagnrýndi hann harðlega fyrir að velja ungar, fallegar og óreyndar konur á framboðslista flokks síns fyrir væntanlegar Evrópuþingskosningar.
„Þetta er í þriðja skipti, sem hún leikur mig grátt í miðri kosningabaráttu. Þetta er of langt gengið," sagði Berlusconi í dag. Þegar hann var spurður hvort hann teldi að hjónaband þeirra muni halda svaraði hann: „Ég held ekki. Ég veit ekki hvort ég vil reyna að halda því saman í þetta skipti."
Að sögn ítalskra fjölmiðla var dropinn sem fyllti mælinn hjá Veronicu að eiginmaður hennar mætti í 18 ára afmæli dóttur viðskiptafélaga síns í Napolí. Berlusconi mætti hins vegar aldrei í 18 ára afmælisveislur barna þeirra þriggja.
Búist er við að skilnaður Berlusconihjónanna muni sjá ítölskum fjölmiðlum fyrir miklu efni á næstunni. Berlusconi er næstríkasti maður Ítalíu og eru eignir hans metnar á 830 milljarða króna.
Bloggað um fréttina
-
Jakob Þór Haraldsson Ótrúlegur TRÚÐUR..! -
Brynjar Hólm Bjarnason Berlusconi brattur -
Gísli Foster Hjartarson Ótrúlegur
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. apríl 2009, Erlent Kona Berlusconis segist þjást
- Sunnudagur, 3. maí 2009, Erlent Eiginkona Berlusconis vill skilnað
- Laugardagur, 23. maí 2009, Erlent Tengslin við táningsstúlkuna
- Mánudagur, 25. maí 2009, Erlent Berlusconi segist njóta stuðnings þjóðarinnar
- Fimmtudagur, 28. maí 2009, Erlent Börn Berlusconi verja föður sinn
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































