Demjanjuk fluttur til Þýskalands
John Demjanjuk var í nótt fluttur frá Bandaríkjunum til Þýskalands og lenti flugvél hans í München laust eftir klukkan 7 að íslenskum tíma. Demjanjuk, sem er 89 ára að aldri, er grunaður um glæpi gegn mannkyninu á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Demjanjuk, sem fæddist í Úkraínu, hefur búið í Bandaríkjunum frá árinu 1952. Hann mun þurfa að svara til saka fyrir rétti í München en þýskir saksóknarar hafa gefið út ákæru á hendur Demjanjuk fyrir að hafa tekið þátt í að myrða 29 þúsund gyðinga í Sobibor fangabúðunum í Póllandi þegar nasistar réðu þar ríkjum.
Demjanjuk var í gærkvöldi fluttur á sjúkrabörum frá húsi sínum í Seven Hills í Ohio og ekið í sjúkrabíl á flugvöll þar sem sjúkraflugvél beið hans. Demjanjuk verður nú fluttur til Stadelheim fangelsisins í München þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun en fjölskylda Demjanjuks segir að hann sé alvarlega sjúkur.
Að sögn þýskra fjölmiðla mun Demjanjuk væntanlega fljótlega verða birt ákæra. Þá er hugsanlegt að maður, sem lifði af vistina í fangabúðunum, verði látinn bera kennsl á Demjanjuk.
Demjanjuk hefur áratugum saman barist í bandarískum dómstólum gegn því að hann verði framseldur til Þýskalands. Hann tapaði þeirri baráttu loks á fimmtudag þegar hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi að það mætti framselja hann. Hann segist hafa verið neyddur til að starfa fyrir nasista og hafi alls ekki gengið hart fram þegar hann var fangavörður í Sobibor.
Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 7. maí 2009, Erlent Hæstiréttur synjar beiðni Demjanjuk
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Erlent Aðstoðaði við 29 þúsund morð
- Miðvikudagur, 2. desember 2009, Erlent Réttarhöldum yfir Demjanjuk frestað
- Þriðjudagur, 14. apríl 2009, Erlent Demjanjuk fer hvergi
- Mánudagur, 13. júlí 2009, Erlent Demjanjuk formlega ákærður
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































