Kristnir hlynntari pyntingum en aðrir

Í Guantanamo fangabúðunum á Kúbu
Í Guantanamo fangabúðunum á Kúbu Reuter

Bandaríkjamenn sem eru kaþólskrar trúar eru hlynntari pyntingum gegn meintum hryðjuverkamönnum en aðrir borgarar. Þetta er niðurstaða könnunar sem greint er frá á fréttaveitu kaþólikka.

Könnunin er gerð á vegum PEW Forum on Religion and Public Life og voru þátttakendur í henni 742 hvítir Bandaríkjamenn, að því er segir á fréttaveitunni Catholic News Agency.

Í fréttinni kemur fram að um 19 prósent kaþólikka telji að pyntingar séu oft réttlætanlegar. Meðal annarra hvítra kristinna þátttakenda var hlutfallið ekki alveg jafnhátt.

Þeir sem fara reglulega í messu eru jákvæðastir gagnvart pyntingum og á þetta bæði við um kaþólikka og mótmælendur.  Aðeins 25 prósent þeirra kváðust vera mótfallin pyntingum.

Þeir sem ekki voru í sérstökum söfnuðum voru mest efins um ágæti pyntinga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert