Börn Berlusconi verja föður sinn
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, vísaði því algerlega á bug í morgun að hann hafi átti í óviðeigandi sambandi við táningsstúlku. Sagðist hann sverja það við hendur barna sinna og að ef hann yrði uppvís að lygum bæri honum að láta af embætti forsætisráðherra.
„Ég hef svarað þeirri einu spurningu sem fólk hefur rétt á að leggja fyrir mig: Forsætisráðherra hefur þú átt í óviðeigandi eða jafnvel ósæmilegu sambandi við stúlku undir lögaldri. Alls ekki,” sagði hann. „Ég hef svarið við hendur barna minna og jafnvel sagt að ef þetta væri satt þyrfti ég þegar í stað að láta af embætti. Varið ykkur á því sem þið lesið í blöðunum.”
Berlusconi, sem er 72 ára, hefur verið undir miklum þrýstingi að útskýra hvers vegna hann mætti í átján ára afmæli fyrirsætunnar Noemi Letizia en í kjölfar þess sótti eiginkona hans Veronica Lario um skilnað frá honum.
Berlusconi staðhæfir að hann þekki stúlkuna í gegn um foreldra hennar en fyrrum kærasti stúlkunnar segir hann hafa sett sig í samband við hana eftir að hafa séð mynd sem hún sendi af sér á eina af sjónvarpsstöðum hans.
Þrjú af fimm börnum Berlusconi tjáðu sig opinberlega um málið í fyrsta sinn í morgun. Dóttir hans Marina Berlusconi, sem er 42 ára, gagnrýnir Dario Franceschini, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, harðlega í viðtali við blaðið Corriere della Sera og segir hann ekki hafa neinn rétt á að móðga Silvio Berlusconi.
„Hver heldur hann eiginlega að hann sé? Gerir hann sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegar ásakanir hans eru? Hann ætti virkilega að skammast sín,” segir hún. Vísar hún þar til auglýsingaspjalda vegna kosninga til Evrópuþingsins en á þeim stendur: „Ítalskir karlar og konur, mynduð þið láta Berlusconi ala upp börnin ykkar?"
„Að móðga föður minn er móðgun við mig sem konu og móður sem hefur miðlað siðferði foreldra sinna til barna sinna,” segir hún.
Bróðir hennar Pier Silvio ver einnig föður sinn og gagnrýnir Franceschini í ítölskum blöðum í dag en bæði vinna þau fyrir fyrirtæki föður síns. Auk þeirra tjáir hálfbróðir þeirra Luigi, sem er tuttugu ára, sig um málið í ítölskum fjölmiðlum í dag. „Hvernig geta stjórnmálamenn dæmt Berlusconi sem föður?" spyr hann.





































