Sadr vill uppræta samkynhneigð

Stuðningsmenn Moqtada al-Sadr bera mynd af honum í mótmælagöngu í …
Stuðningsmenn Moqtada al-Sadr bera mynd af honum í mótmælagöngu í Baghdad Reuters

Íraski sjítaklerkurinn Moqtada Sadr hefur gefið út fyrirmæli um að „siðspillingin" samkynhneigð verði upprætt. Talsmaður hans segir hann þó vara við ofbeldi gegn samkynhneigðum en mikil fjölgun hefur orðið á árásum á þá í landinu að undanförnu. 

„Tilgangur fundanna er að berjast gegn siðspillingu og hvetja samfélagið til að leggjast gegn þessu fyrirbæri,” segir talsmaðurinn  Sheikh Wadea al-Atabi um ráðstefnu klerka, ættbálkahöfðingja og lögreglu um málið í gær. „Eina leiðin til að stöðvað þetta er með ræðuhöldum og leiðsögn.”

Þá sagði hann Al-Sadr ekki styðja ofbeldi gegn samkynhneigðum og að þeir sem beiti slíku ofbeldi geti ekki talist til hreyfingar hans. 

Á ráðstefnunni í gær sagði Al-Sheikh Dawud al-Enezi, einn af leiðtogum hreyfingar Sadr m.a: „Við verðum að leiðrétta siðferði þjóðarinnar. Samkynhneigð er stórslys sem hent hefur þjóðina.”  

Abu Hussein, ættflokkaleiðtogi í Sadr City sagði: „Það verða allir að vinna að því að varðveita siðferði unga fólksins gegn þessari spillingu úr vestri.”  

Þrír menn, sem sagðir eru hafa verið hommar, voru skotnir til bana í Sadr City í Bagdad í síðasta mánuði. Aðrir þrír voru pyntaðir til bana. Fjórir til viðbótar voru pyntaðir en lifðu það af.

Í apríl hengdu samtök sem kalla sig „Hersveitir hinna ráðvöndu” upp lista með nöfnum meintra homma  í Sadr City og hótaði þeim lífláti.

Mannréttindasamtökin Amnesty International hvöttu fólk til þess í síðasta mánuði að skrifa Nuri al-Maliki, forsætisráðherra landsins, og hvetja yfirvöld til aðgerða til verndar samkynhneigðum í landinu.

Engin lög eru gegn samkynhneigð í landinu en hún er bönnuð í íslam og ólögleg í mörgum ríkjum í Miðausturlöndum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert