Síðasti Titanic-farþeginn látinn

Millvina Dean horfir gegnum kýrauga úr Titanic. stækka

Millvina Dean horfir gegnum kýrauga úr Titanic. Reuters

Millvina Dean, eini farþeginn í farþegaskipinu Titanic sem enn var á lífi, lést á hjúkrunarheimilli á Englandi í dag, 97 ára að aldri.  Dean var 9 vikna gömul þegar Titanic sökk í Atlantshaf  14. apríl árið 1912 eftir að hafa rekist á ísjaka.

Dean, sem hét fullu nafni Elizabeth Gladys Dean en var jafnan kölluð Millvina, komst lífs af ásamt Georgette Eva, móður sinni og Bertram, bróður sínum, þegar Titanic sökk. Faðir hennar, Bertram Frank, fórst hins vegar og 1500 aðrir farþegar. 

Fjölskylda Deans fór um borð í Titanic í Southamton á Englandi og ætlaði að hefja nýtt líf í Kansas í Bandaríkjunum þar sem fjölskyldufaðirinn vonaðist til að opna tóbaksbúð.

Millvina, sem fæddist 12. febrúar 1912, var yngsti farþeginn í skipinu. Það var þá stærsta og tæknilega fullkomnasta farþegaskip heims og fullyrt var að það gæti ekki sokkið.

Skipið rakst á ísjaka í jómfrúrferð sinni klukkan 23:40 að kvöldi 14. apríl 1912. Tveimur tímum og 40 mínútum síðar sökk skipið í sæ.

Dean var flutt aftur til Southampton ásamt fjölskyldu sinni. Hún var átta ára gömul þegar hún fékk fyrst að vita að hún hefði verið í skipinu.

Dean vann sem kortagerðarmaður fyrir breska ríkið í síðari heimsstyrjöld og starfaði síðan hjá verkfræðistofu. Hún sagði við blaðamenn, að hún hefði skyndilega orðið fræg þegar flakið af Titanic fannst árið 1985 og veitti þá fjölda viðtala. Henni var boðið að ljúka ferðinni yfir Atlantshaf til Bandaríkjanna með skipinu QE2 árið 1997 og hún þáði það boð. Hún hafnaði hins vegar boði um að vera viðstödd frumsýningu kvikmyndarinnar Titanic vegna þess að hún taldi að það yrði of erfitt.

Millvina flutti á hjúkrunarheimili í Hamshire fyrir þremur árum eftir að hún mjaðmargrindarbrotnaði. Hún neyddist til að selja ýmsa muni, tengda Titanic, á uppboði á síðasta ári, svo sem bréf, sem móðir hennar fékk frá ýmsum aðilum í kjölfar slyssins.

Þá seldi hún einnig aldargamla ferðatösku fulla af fötum, sem fólk í New York gaf fjölskyldunni. 

Titanic árið 1912.

Titanic árið 1912. AP

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »
Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
Í gær, 15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
Í gær, 14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
Í gær, 13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
Í gær, 14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
Í gær, 14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden myndskeið

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
Í gær, 12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Yaris DIESEL árgerð 2006
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Silf...
Gisting á höfuðborgarsvæðinu
Erum með laus herbergi. Tilboðsverð í maí. Sjá myndir www.lily.is. Gistiheimi...
Garðuðun Meindyraeyðir
Uða garða gegn maðki og lus eyði Köngulom af husum geitungum flo öll almenn og s...
Tripp Trapp barnastóll
Vel með farinn Tripp Trapp barnastóll til stölu á hálfvirði. Upplýsingar í sím...
 
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...