Mikið var um dýrðir á minningarathöfninni um Jackson

Mikið var um dýrðir á opinberrri minningarathöfn  um tónlistarmanninn Michael Jackson sem fram fór í Staples Center íþróttamiðstöðinni í Los Angeles í dag. Boðið var upp á ýmis tónlistaatriði og margir fluttu ávörpuðu samkomuna.

Gullslegin líkkista Jacksons, sem sögð er hafa kostað 25 þúsund dollara, stóð fyrir framan sviðið en í salnum voru um 20 þúsund manns.  Færri komust að en vildu innanhúss en talið er að 50.000 manns séu þar fyrir utan, að sögn Los Angeles Times, nokkuð færri en reiknað var með. 

Útför poppstjörnunnar fór fram í dag í Forest Lawn kirkjugarðinum í Hollywood, að hætti Votta Jehóva. Athöfnin var lokuð almenningi en fjölskyldan hélt rakleiðis þaðan í íþróttamiðstöðina.

Minningarathöfnin í Staples Center hófst með því að tónlistarmaðurinn Smokey Robinson las upp bréf frá söngkonunni Diana Ross og Nelson Mandela, fyrrverandi forseta Suður-Afríku og friðarverðlaunahafa Nóbels.

Meðal þeirra sem sungu voru Mariah Carey, Stevie Wonder og Lionel Ritchie.

Gullkista Jacksons við minningarathöfnina í Staples Center.
Gullkista Jacksons við minningarathöfnina í Staples Center. Reuters
Tónlistarmaðurinn Smokey Robinson ávarpar minningarathöfnina.
Tónlistarmaðurinn Smokey Robinson ávarpar minningarathöfnina. Reuters
Bræður Jacksons héldu á kistunni í salinn við upphaf minningarathafnarinnar.
Bræður Jacksons héldu á kistunni í salinn við upphaf minningarathafnarinnar. Reuters
Reuters
Skemmtikrafturinn Queen Latifah flytur ávarp í Staples Center í dag.
Skemmtikrafturinn Queen Latifah flytur ávarp í Staples Center í dag. Reuters
Séra Al Sharpton og körfuboltamaðurinn Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles …
Séra Al Sharpton og körfuboltamaðurinn Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, mæta til minningarathafnarinnar. Reuters
Lionel Richie syngur á minningarathöfninni.
Lionel Richie syngur á minningarathöfninni. Reuters
Berry Gordy stofnandi Motown útgáfufyrirtækisins minntist hins fallna konungs popptónlistarinnar, …
Berry Gordy stofnandi Motown útgáfufyrirtækisins minntist hins fallna konungs popptónlistarinnar, eins og Jackson er gjarnan nefndur. Reuters
Systkinin Bernice og Martin Luther King yngri III komu fram …
Systkinin Bernice og Martin Luther King yngri III komu fram á athöfninni. Þau eru börn blökkumannaleiðtogans Martin Luther King. Reuters
Leikarinn Mickey Rooney var meðal viðstaddra.
Leikarinn Mickey Rooney var meðal viðstaddra. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert