Enn eitt sjórán á Aden flóa
Belgíska flutningaskipið Pompei er eitt þeirra skipa sem sómalskir sjóræningjar hafa náð á sitt vald á Aden flóa það sem af er ári. Skipinu var rænt um miðjan apríl en ræningjarnir létu það af hendi 28. júní síðastliðinn. HO
Sómalskir sjóræningjar náðu í morgun á sitt vald tyrknesku olíuflutningaskipi á Aden flóa. Um borð er 23 manna áhöfn en skipið var á leið frá Sádí Arabíu til Jórdaníu.
Sjóræningjar á gúmmítuðrum létu til skarar skríða í birtingu í morgun. Þeir komu á þremur bátum að Horizon I en skipið er í eigu samnefnds skipafélags í Istanbul. Þremur vopnuðum sjóræningjum tókst að komast um borð í Horizon og yfirbuga áhöfnina.
Skipið heldur að sögn talsmanna eigenda þess kúrs og engar kröfur hafa verið settar fram af hálfu sjóræningjanna.
Tímasetning sjóránsins kemur nokkuð á óvart en monsún rigningartíminn stendur nú sem hæst og sjórinn á Aden flóa er því nokkuð úfinn.
Sjórán hafa verið tíð á Aden flóa og er siglingaleiðin talin ein sú hættulegasta í heimi. Stjórnleysi hefur að mestu ríkt í Sómalíu frá árinu 1991. Bráðabirgðabirgðastjórn sem nýtur stuðnings alþjóðasamfélagsins situr þar nú. Hún ræður hins vegar ekki nema hluta landsins þar sem íslamistar hafa náð hlutum þess á sitt vald á ný eftir að eþíópískar hersveitir hurfu frá landinu i byrjun árs.
Frá áramótum hafa sómalskir sjóræningjar rænt á þriðja tug skipa úti fyrir ströndum landsins og haldið á fimmta hundrað manns í gíslingu. Talið er að 12 skip séu enn á valdi sjóræningja og um 200 manns í gíslingu þeirra.
Lítið lát er á sjóránum á Aden flóa þrátt fyrir að Evrópusambandið hafi í júní samþykkt að herða aðgerðir gegn sjóræningjum. Rúmlega tuttugu skip Breta, Frakka, Þjóðverja, Ítala og fleiri Evrópusambandsþjóða halda nú uppi eftirliti á um tveggja milljóna ferkílómetra svæði á flóanum.
Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 16. nóvember 2008, Erlent Enn eitt sjórán undan ströndum Sómalíu
- Fimmtudagur, 27. ágúst 2009, Erlent Sjóræningjar skutu á herþyrlu
- Þriðjudagur, 18. nóvember 2008, Erlent Olíuflotinn sneiði hjá sjóræningjaslóðum
- Mánudagur, 17. nóvember 2008, Erlent Rændu olíuskipi á Aden flóa
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Erlent Sjóræningjaskipi sökkt
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































