Léttust um fjórðung á viku

mbl.is/G. Rúnar

Lyf sem stýrir úrvinnslu glúkósa í líkamanum minnkaði líkamsþyngd tilraunamúsa um fjórðung og fitumassa um 42% á aðeins einni viku. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsókna sem voru birtar í tímaritinu Nature Chemical Biology í dag.

Efnið er samsett úr tveimur tilbúnum hormónum sem líkja eftir glúkagon og peptíði sem líkist glúkagon, GLP-1. Það hjálpar við að stýra niðurbroti glúkósa, að því er fram kemur í greininni.

Meðferð byggð á lyfinu er talin munu geta opnað nýjar leiðir fyrir fólk sem þjáist af offitu og sykursýki 2. Frekari vinnu og rannsókna er þó krafist áður en hægt er að nota lyfið á mannfólki að sögn rannsakendanna, en fyrir þeim fer Richard DiMarchi við Indiana University.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert