Rýmka vopnalög til að auka öryggi borgaranna
Í Tennesse má vafalaust herja út nokkurn afslátt á hádegismatnum með svona fallbyssu. AP
Í kjölfar fjölda skotárása í Bandaríkjunum ætla stjórnvöld í Tennessee í Suðurríkjunum að breyta vopnalöggjöf sinni. Þau ætla að slaka á hömlum á vopnaburði.
Frá þessu segir á vef BBC í dag.
Verði fyrirhugaðri löggjöf ekki hnekkt munu íbúar Tennessee-ríkis frá og með morgundeginum fá mun rýmri heimildir til að bera á sér skotvopn. Meðal annars verður heimilt að bera á sér skotvopn á krám og veitingastöðum. Hinum vopnuðu verður þó blessunarlega ekki heimilt að kaupa áfengi.
Þingmaður Tenessee, Doug Jackson, segir fólk hræðast morgundaginn. Málið snúist um rétt þess til að verja sig og fjölskyldu sína, lögin veiti öryggi á ólgutímum.
Nikki Goeser, íbúi í Nashville, er meðal 250.000 skráðra skotvopna eigenda í Tennessee. Hún horfði upp á mann sinn skotinn til bana í apríl. Hún telur að réttur hennar til vopnaburðar hafi verið skertur þegar mest lá við með þessum afleiðingum.
„Byssa getur drepið, en í réttum höndum getur hún verið notuð til að bjarga mannslífum. Mér er ekki svo umhugað um líf vonda mannsins,“ segir Goeser sem kveðst vopnuð og vita hvað hún syngur.
Randy Rayburn rekur veitingastað í borginni og líst illa á að viðskiptavinir hans geti borið vopn en hann fer fyrir hópnum sem vill fá lögunum hnekkt. Telur hann lögin stofna lífi og limum hans og starfsfólks hans í hættu.
„Já, þau eru óttaslegin, ég er óttasleginn, konan mín óttast um öryggi okkar,“ segir Rayburn. „Við þörfnumst ekki sjálfskipaðra laganna varða inni á staðnum mínum. Ég er byssueigandi, ég á byssu á heimili mínu en ég hef hana þar, ekki á opinberum stöðum þar sem lífi fjölda fólk getur verið ógnað.“
Lögreglustjóri Nashville, Ronal Serpas, er á sama máli og Rayburn. Hann telur að lögin muni skapa hættu á veitingastöðum og öldurhúsum.
Rayburn hefur sett upp skilti í glugga veitingastaðar síns sem á stendur „engar byssur leyfðar.“
Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Erlent S&P varar skuldsett ríki við
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Erlent Viðræður mili Indlands og Pakistans
- Mánudagur, 22. september 2008, Erlent Tölvupóstur Palin í hættu?
- Laugardagur, 18. apríl 2009, Erlent Höfðafundurinn gerður upp
- Fimmtudagur, 17. júlí 2008, Erlent Þriðji hver íbúi of feitur
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































