Blair forseti ESB?

Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands.
Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands. Reuters

Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, hyggst sækjast eftir embætti forseta Evrópusambandsins og hefur Glenys Kinnock, barónessa og Evrópumálaráðherra bresku stjórnarinnar, lýst yfir stuðningi bresku stjórnarinnar við framboð hans. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Staðan hefur enn ekki verið formlega stofnuð en kveðið er á um stofnun hennar í Lissabonsáttmála Evrópusambandsins. 

Kinnock sagði á blaðamannafundi í Strasbourg í morgun að Blair hefði nógu sterkan persónuleika og nyti nægilega mikillar virðingar á alþjóðavettvangi til að takast á við starfið.

„Fólk veit hver hann er. Hann myndi auka mjög virðingu fyrir starfinu og vera boðinn hjartanlega velkominn," sagði hún. Spurð um það hvort málið hefði verið rætt við Blair, sagði hún að ríkisstjórnin myndi ekki lýsa yfir stuðningi við hann hefði það ekki verið gert. 

Áður hafa breskir ráðamenn neitað að tjá sig um hugsanlegt framboð Blair og bent á að Lissabonsáttmálinn hafi enn ekki verið samþykktur á Írlandi.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert