Samstarfskona Politkovskayu myrt

Mótmælendur halda uppi myndum af Önnu Politkovskayu í tilefni af …
Mótmælendur halda uppi myndum af Önnu Politkovskayu í tilefni af heimsókn Medvedev Rússlandsforseta til Amsterdam. Reuters

Rússneski mannréttindafrömuðurinn Natalia Estemirova var myrt í Tétsníu í morgun. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Samstarfsfólk hennar segir hana hafa verið stöðvaða á götu og neydda upp í sendiferðabíl. Lík hennar fannst í nágrannahéraðinu Ingushetiu nokkrum klukkustundum síðar en hún hafði verið skotin tvívegis í höfuðið.

Estemirova vann að rannsókn mannréttindabrota í Tétsníu á vegum samtakanna Memorial Group er hún var myrt. Hún vann áður með blaðakonunni Önnu Politkovskaya, sem var skotin til bana árið 2006, og Stanislav Markelov, sem var drepinn í janúar á þessu ári. 

Estemirova hlaut verðlaun Önnu Politkovskayu árið 2007 en auk þess hafði hún hlotið sænskar og evrópskar viðurkenningar fyrir störf sín að mannréttindamálum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert