Réttarhöld halda áfram í Mumbai

Mynd sem indverska lögreglan birti af Ajmal Qasab en myndin er tekin skömmu áður en ... stækka

Mynd sem indverska lögreglan birti af Ajmal Qasab en myndin er tekin skömmu áður en hann var handsamaður. AP

Dómari á Indlandi hefur úrskurðað að réttarhöld yfir Mohammad Ajmal Amir Qasab, sem sakaður er um aðild að sprengjutilræðunum íMumbai í nóvember á síðasta ári skuli halda áfram þrátt fyrir játningu hans. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Ákvörðun dómarans ML Tahiliyani er byggð á því að játningin nái ekki til allra 86 ákæruatriðanna gegn honum.

„Eins og stendur ætla ég ekki að kveða upp dóm. Hinn ákærði hefur ekki játað öll ákæruatriðin. Hann játar ákveðinn hluta þeirra, játar sig sekan að ákveðnum brotum. Hann hefur ekki játað mörg af 86 ákæruatriðum,” segir hann.

„Ég mun ekki tjá mig um yfirlýsingar hans á þessu stigi þar sem ég tel það ekki nauðsynlegt. Ég hef þegar tilkynnt að réttarhöldin muni halda áfram. 

Qasab, sem er Pakistani, lýsti sig saklausan af ákærunum í maí á þessu ári en 170 manns létu lífið í tilræðunum.

Lögfræðingur hans Abbas Kazmi hefur nú boðist til að segja af sér en hann lýsti því yfir eftir að Qasab játaði á sig aðild að málinu á mánudag og þriðjudag að binda ætti enda á réttarhöldin og kveða strax upp dóm yfir honum. Dómarinn segir það vera sakborningsins og lögfræðing hans að ákveða hvort þeir vinni áfram saman. 

Qasab lýsti því yfir í gær að hann vildi láta hengja sig eftir að saksóknari staðhæfði að játningar hans væru blekkingarleikur sem miðuðu að því að tryggja honum léttari dóm.

Qasab er talinn vera einn tíu árásarmann sem komust lífs af úr tilræðunum og átökum við lögreglu í kjölfar þeirra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »
Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
Í gær, 15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
Í gær, 14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
Í gær, 13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
Í gær, 14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
Í gær, 14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden myndskeið

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
Í gær, 12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Tækifæri
Toppurinn í kaffivélum í dag. Þitt eigið sælkera-kaffihús hvar sem er. Lífrænt ...
VW Passat 2,0 Comfortline 5.2003
Til sölu VW Passat 2,0 Comfortline 5.2003 ekinn 147 þ.km Sjálfskiptur nýskoðaður...
OPIÐ HÚS
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2012 OPIÐ HÚS Á LANGHOLTSVEGI 12 REYKJAVÍK...
Stórt hundabúr
Til sölu stórt hundabúr. Passar fyrir tvo stóra hunda í bíl, búrinu fylgir skilr...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...