Hætta við þátttöku í HM í Badminton vegna sprengjuhótunar
Enska landsliðið í badminton hefur ákveðið að taka ekki þátt í heimsmeistaramótinu, sem hefst í Hyderabad á Indlandi á morgun, vegna sprengjuhótunar.
Skotar og Walesverjar taka hins vegar þátt, enda mun hótunin hafa beinst að Englendingum. Formaður Badmintonsambands Skotlands segir að Englendingar hafi brugðist full harkalega við með því að hætta við þátttöku í mótinu.
Sprengjuhótunin kom frá hryðjuverkasamtökunum Lashkar-e-Taiba (LeT) fyrir nokkrum dögum. Formaður Badmintonsambands Englands segist vonsvikinn. Leyniþjónusta Bretlands taki hótanir sem þessa mjög alvarlega og ekki sé á það hættandi að fara til Indlands með landsliðið og fylgdarmenn.
Thomas Lund, talsmaður Alþjóðabadmintonsambandsins sagðist virða ákvörðun Englendinga en sagði óheppilegt að þeir hefðu dregið sig út úr keppni áður en farið hefði verið yfir öryggisgæslu á mótinu og aðgerðri sem gripið verður til í ljósi hótana Lashkar-e-Taiba samtakanna.
Átta leikmenn enska landsliðsins í badminton hafa dvalið í Doha í Qatar undanfarna viku, ásamt þjálfurum og aðstoðarfólki, vegna undirbúnings fyrir HM.
„Leikmenn okkar voru virkilega vel undirbúnir fyrir mótið en þegar allt kemur til alls skiptir öryggi okkar fólks meira máli en árangurinn,“ segir Adrian Christy, talsmaður landsliðs Englendinga.
Lashkar-e-Taiba (LeT) hryðjuverkasamtökin, hafa bækistöðvar í Urdu í Pakistan, skammt frá landamærum Afganistans. Samtökin berjast gegn yfirráðum Indverja í Kasmír. LeT er talið bera ábyrgð á fjölda hryðjuverka á Indlandi. Að minnsta kosti 165 létust í hryðjuverkaárás LeT í Bombay í nóvember síðastliðnum. LeT eru sömuleiðis talin bera ábyrgð á hryðjuverkaárás í Nýju Delí, höfuðborg Indlands í október 2005 en þá létust a.m.k. 60 manns.
Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 20. júlí 2009, Erlent Játar aðild að tilræðum í Mumbai
- Mánudagur, 3. maí 2010, Erlent Árásarmaður sakfelldur
- Fimmtudagur, 18. mars 2010, Erlent Ætlaði að ráðast á Jyllands-Posten
- Fimmtudagur, 15. janúar 2009, Erlent Miliband fordæmir stríð gegn hryðjuverkum
- Laugardagur, 6. desember 2008, Erlent Fréttaskýring: Kurr milli kjarnorkuvelda
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































