Barnsrán til umræðu í Kína
Töluverð umræða fer nú fram um barnsrán í Kína eftir að kona viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að hafa starfað fyrir glæpahring sem rændi börnum og seldi þau innan Kína. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.
Sagði hún mesta eftirspurn vera eftir drengjum sem væru seldir á andvirði allt að 1.200 Bandaríkjadollara. Stúlkur séu hins vegar seldar á rúmlega 200 dollara.
Í sjónvarpsviðtali við CNN greinir önnur kona Deng Huidong frá því er Ruicong, níu mánaða gömlum syni hennar, var rænt fyrir rúmu ári.Huidong segir að drengurinn hafi verið hrifsaður af henni af karlmanni sem teygði sig út úr hvítum sendiferðabíl við heimili hennar. Hún segist hafa elt bílinn hljóðandi og fengið til þess aðstoð vegfaranda á mótorhjóli. Eftirförinni hafi hins vegar lokið er hún leitaði á náðir lögreglu.
„Ég fór inn í fjandans lögreglubílinn en eftir nokkrar sekúndur beygði hann skyndilega inn hliðargötu. Ég spurði hvers vegna en fékk engin svör. Ég grét og spurði en var ekki virt viðlits. Seinna þegar ég spurðist fyrir um málið á lögreglustöðinni var mér sagt að lögreglumaðurinn hefði ekki verið á vakt og það hafi því verið á starfssviði annarra að hafa hendur í hári mannræningjanna. Við erum lögreglunni mjög reið. Syni okkar var rænt og það gerði enginn neitt. Það var eins og sonur okkar skipti minna máli en hundur.”Fleiri foreldrar taka undir gagnrýni Huidong á lögreglu.
„Það hjálpaði okkur enginn. Lögreglunni fannst þetta ekki mikið mál. Þetta gerðist í nóvember og það var ekki byrjað að rannsaka málið fyrr en í desember,” segir Zhang Chunxiang en syni hennar, sem þá var fjögurra ára, var rænt fyrir fimm árum.
„Lögreglan sagði að barnið hefði ráfað í burtu. Öll fjölskyldan leitaði að honum fram á kvöld,. Þá fór ég aftur á lögreglustöðin og kraup fyrir framan þá en þeim var alveg sama. Þeir sögðu að barnið hefði ráfað í burtu og að við ættum að leita að honum sjálf.”
Yfirmenn lögreglu í umræddum umdæmum neituðu að tjá sig um málið við fréttamenn CNN en Chen Shiqu, yfirmaður mannráns og mansalsdeildar kínverska öryggismálaráðuneytisins segir lögreglu ekki skylt að hefja rannsókn á barnshvarfi hafi enginn orðið vitni að því er barninu var rænt.
Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. janúar 2009, Erlent Klaufalega staðið að barnsráni
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Mánudagur, 8. desember 2008, Erlent Rice: Ábyrgðin Pakistana
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Erlent Engar afsagnir vegna Baby P
- Mánudagur, 4. maí 2009, Erlent Tvö ár frá hvarfi Madeleine
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































