Handteknir fyrir skartgriparán
Tveir menn koma fyrir breska dómstóla á morgun eftir að hafa verið ákærðir fyrir aðild að stærsta skartgriparáni Bretlands, en tjónið vegna þess er talið nema 40 milljónum punda eða rúmlega átta og hálfum milljarði íslenskra króna.
Mennirnir eru ákærðir fyrir samsæri ásamt fleirum um að ræna Graff skartgripaverslunina í London en ránið var gert um hábjartan dag fyrr í þessum mánuði. Mennirnir eru 24 og 26 ára og hafa einnig verið ákærðir fyrir að brjóta gegn vopnalögum.
Lögreglan hefur handtekið þrjá menn á liðnum tveimur dögum vegna ránsins sem er sagt hafa verið vel skipulagt og eru fleiri taldir eiga hlut að máli. Fimmtugur maður var einnig handtekinn í síðustu viku en honum var sleppt.
Breska lögreglan hefur neitað að gefa nánari upplýsingar um handtökurnar og neitar að segja hvort mennirnir sem voru ákærðir voru þeir sem náðust á eftirlitsmyndavélar daginn sem ránið var framið.
Lögreglan hefur einnig neitað að gefa upp hvort eitthvað af góssinu, 43 hringir, armbönd, hálsmen og úr hafi fundist. Fundarlaun upp á eina milljón punda eru í boði fyrir þá sem finna mennina sem stóðu að ráninu á Nýja Bond stræti.
Ræningjarnir komu í búðina í svörtum leigubíl, klæddir í grá jakkaföt og hvítar skyrtur og töluðu með Lundúnahreim. Þeir löbbuðu inn í búðina um hábjartan dag og ógnuðu starfsfólki með byssum. Þegar þeir yfirgáfu búðina drógu þeir starfsstúlku með sér og skutu varnaðarskotum fyrir utan. Þeir skildu konuna eftir og brunuðu á brott í bláum BMW. Enginn særðist.
Stjörnur á borð við Paris Hilton, Kylie Minogue, Naomi Campbell, Oprah Winfrey og Viktoríu Beckham eru meðal gesta Graff-skartgripabúðarinnar.
Erlent »
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Erlent Bjóða 1 milljón punda í verðlaun
- Miðvikudagur, 7. október 2009, Erlent Stálu auðkennum frá þúsundum reikningseigenda
- Laugardagur, 14. nóvember 2009, Erlent Seldu mannakjöt til veitingahúss
- Föstudagur, 25. júní 2010, Erlent Demantaþjófur sakfelldur
- Mánudagur, 19. júlí 2010, Erlent Sænskir þyrlubófar ákærðir
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































