„Áhrifamesta Kennedy-bróðurins" minnst
Á meðal þeirra sem minnst hafa Kennedy er Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, sem segir hann hafa átt stóran þátt í því að binda enda á áratugalangan ófrið á Norður-Írlandi.
„Ég sá sjálfur hversu einbeittur og ákveðinn hann var á Norður-Írlandi þar sem ástríðufull tryggð hans við málstaðinn og skarpur skliningur á því hvað þurfti að gera til að ná fram friði og viðhalda honum, fóru saman,” sagði Blair í dag.
Brian Cowen, forsætisráðherra Írlands, tók í sama streng og sagði Kennedy hafa verið mikinn vin Írlands. „Hann notaði áhrif sín á áhrifamesta þjóðþingi heims til að bæta aðstæður á þessari eyju,” sagði hann.
„Bæði á góðum dögum og slæmum vann Ted Kennedy af atorku að friði á þessari eyju. Hann fór með sérstaklega mikilvægt hlutverk við upphaf friðarferlisins á Norður-Írlandi á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar.”
Kennedy, sem var af írskum ættum, var upphaflega harður gagnrýnandi herliðs Breta á Norður- Írlandi en mildaðist síðan í afstöðu sinni og ávann sér traust breskra yfirvalda.
Hann er einnig talinn hafa komið því til leiðar að Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, fengi vegabréfsáritun til Bandaríkjanna þannig að hann gæti tekið þátt í ráðstefnu um framtíð Norður-Írlands, sem markaði upphaf friðarferlisins.
Á vefsíðu bandaríska tímaritsins Time er Edward sagður hafa verið sá af Kennedy-bræðrunum sem hafði mest áhrif á bandarískt samfélag.Segir þar að sem áhrifamikill öldungadeildarþingmaður hafi hann haft áhrif á bandarískt samfélag í mun lengri tíma en bræður hans, jafnvel þótt annar þeirra hafi verið forseti og hinn dómsmálaráðherra. Þar sem hann hafi aldrei orðið forseti hafi hann heldur ekki orðið „óvirkur” að forsetatíðinni lokinni líkt og algengt sé með fyrrum forseta.
Kennedy, sem greindist með illkynja æxli í heila í maí á síðasta ári, varð öldungadeildarþingmaður Massachusetts árið 1962 þegar hann tók sæti bróður síns, John F. Kennedy, sem tók við embætti Bandaríkjaforseta. Hann var síðan endurkjörinn sjö sinnum í embættið og hafa fáir öldungadeildaþingmenn þjónað setið jafn lengi á þingi í sögu Bandaríkjanna.Kennedy beitti sér m.a. í málum sem varða heilbrigðis- og menntamál og var dyggur stuðningsmaður Baracks Obama Bandaríkjaforseta.
Hann var sá eini fjögurra bræðra sem lést af náttúrulegum orsökum. Joseph Kennedy lést í flugslysi á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar og John F. Kennedy forseti Bandaríkjaforseti og Robert F. Kennedy dómsmálaráðherra voru myrtir.





































