Frakkar og Bretar fá bóluefni gegn H1N1
Frakkar og Bretar hafa fengið fyrstu skammtana af nýju bóluefni gegn inflúensu A, H1N1. Bóluefnið hefur ekki enn verið samþykkt en vonir eru bundnar við að öll leyfi liggi fyrir í október. Ísland fær sína fyrstu skammta í september.
Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi hafa þó ekki enn gefið leyfi fyrir notkun bóluefnisins. Að óbreyttu ættu öll leyfi að liggja fyrir í október og er þá hægt að hefjast handa við bólusetningu. 66 hafa nú látist af völdum H1N1 í Bretlandi en inflúensan hefur leikið Breta harðast allra Evrópuþjóða.
Þá tilkynntu Frakkar að þeir hefðu fengið ótilgreint magn af nýju bóluefni. Frakkar gefa ekki upp hvaðan eða hve mikið magn bóluefnis þeir hafa fengið og bera við öryggissjónarmiðum. Þar líkt og í Bretlandi, er þess beðið að notkun bóluefnisins verði heimiluð. Frakkar hafa pantað bóluefni frá bandaríska lyfjaframleiðandanum Baxter, Sanofi-Pasteur í Frakklandi, GlaxoSmithKline (GSK) í Bretlandi og Novartis í Sviss.
Baxter og Novartis hafa bæði sótt um að fá að setja á markað bóluefni sem framleidd eru á grunni frumuræktunar en mun meira magn fæst þannig frekar en þegar efnið er framleitt á hefðbundinn hátt með því að rækta vírusa í hænueggjum.
Spánverjar tilkynntu í dag að þeir ætluðu að hefja bólusetningu gegn inflúensunni í október eða nóvember. 20 manns hafa nú látist af völdum H1N1 í landinu. Spánverjar ætla að bólusetja um 40% landsmanna til að byrja með eða rúmlega 18 milljónir manna. Byrjað verður að bólusetja heilbrigðisstarfsfólk og lykilfólk í stjórnkerfi landsins. börn undir 14 ára aldri, ófrískar konur og fólk sem stríðir við alvarleg veikindi í hjarta og æðakerfi eða öndunarfærum.
Belgar fá fyrstu skammtana af bóluefni gegn H1N1 inflúensu í september. Í upphafi koma 200 þúsund skammtar frá GlaxoSmithKline en Belgar ætla að kaupa 10 milljónir skammta af bóluefni fyrir lok ársins. Bólusetning hefst þó ekki í Belgíu fyrr en eftirlitsstofnanir hafa gefið leyfi fyrir notkuninni.
Erlent »
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 12. júlí 2009, Erlent Bólusetja alla Norðmenn
- Fimmtudagur, 24. september 2009, Erlent Bóluefni fyrir helming fólks
- Sunnudagur, 3. janúar 2010, Erlent Selja umframbirgðir af bóluefni gegn svínaflensu
- Föstudagur, 12. júní 2009, Erlent Flensubóluefni í prófanir
- Mánudagur, 12. október 2009, Erlent Bóluefni að berast til þróunarlanda
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“




































