Ferð skútustúlku stöðvuð

Dómari í Hollandi hefur falið barnaverndaryfirvöldum forræði þrettán ára stúlku, sem hugðist freista þess að verða yngsti einstaklingurinn til að sigla ein umhverfis jörðina. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Gildir úrskurður dómarans næstu sex mánuði en samkvæmt honum geta  foreldrar stúlkunnar Laura Dekker ekki tekið stórar ákvarðanir fyrir hana á þeim tíma. Hún mun þó áfram búa hjá föður sínum 

Í úrskurðinum er jafnframt kveðið á um að geðlæknir meti hæfni stúlkunnar til að takast slíka ferð á hendur.

Þá lýsir dómarinn áhyggjum af því að slík ferð geti ógnað andlegri og líkamlegri heilsu stúkunnar. Foreldrar stúlkunnar styðja áform hennar en málið komst til kasta yfirvalda er faðir hennar sótti um tveggja ára leyfi fyrir hana úr skóla. Þeirri umsókn hans var hafnað.  

„Við erum að tala um þrettán ára gamalt barn,” sagði Caroline Vink, annar æðsti yfirmaður barnaverndarmála í Hollandi. „Það má setja spurningamerki við það hvort hún sé fær um að taka slíka ákvörðun og það hvort ákvarðanir foreldra hennar séu teknar með hagsmuni hennar í huga.” 

Foreldrar Lauru segja hana fædda um borð í snekkju úti fyrir Nýja Sjálandi er þau voru stödd þar á sjö ára siglingu sinni um heiminn. Hún eignaðist sína eigin skútu þegar hún var sex ára og hefur siglt ein frá því hún var tíu ára.

„Frá því ég var tíu ára hef ég vitað að ég vildi sigla umhverfi hnöttinn,” sagði hún í sjónvarpsviðtali áður en úrskurður dómarans lá fyrir. „Ég vil bara læra um heiminn og vera frjáls.”

Fyrr í vikunni varð sautján ára breskur piltur yngsti einstaklingurinn til að sigla einn í kring um hnöttinn. Ferð hans tók níu mánuði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd úr safni

Fellibylurinn Bud nálgast land

06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »
Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
Í gær, 15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
Í gær, 14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
Í gær, 14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
Í gær, 14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarhús til leigu - Reykholt Bisk.
Bústaður til leigu við Reykholt í Biskupstungum. Laus þessa viku (Hvítasunnuhelg...
TOYOTA LAND CRUISER 100 VX, 2004
Til sölu "Gullmoli" aðeins ekinn 87Þ. km. einn með öllu. Dísel Uppl. í síma 899...
Sparibaukurinn er til sölu - Peugeot 206 HDI árg.2006
Þessi bíll notar disel olíu, hann eyðir mjög litlu 4-5 lítrum á hundraðið. Hann ...
Síritar - Hiti og raki - Íshúsið ehf
Úrval af síritum sem geta bæði skráð bæði hita- og rakastig. Einnig fjölbreytt ú...
 
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....