Til vinstri hvað sem það kostar
Segja má að gjá hafi myndast milli stjórnvalda og íbúa á Samóa vegna þess að breyta á frá hægriumferð yfir í vinstriumferð um næstu helgi. Þúsundir manna hafa skrifað undir áskorun um að hætt verði við þetta og málið hefur einnig komið til kasta hæstaréttar eyjanna.
Það tók hæstaréttardómarann Vui Clarence Nelson nærri fjórar stundir í morgun að lesa upp dóm í máli sem samtökin Fólk gegn vinstriumferð höfðaði gegn stjórnvöldum og taldi breytinguna brjóta gegn stjórnarskrárbundnum rétti íbúa til að lifa þar sem breytingin muni leiða til fleiri umferðarslysa og brjóta einnig gegn réttindum eigenda bíla þar sem stýrið er vinstra megin.
Dómarinn taldi hins vegar ekki sannað að vinstriumferð leiddi til fleiri slysa.
Aumua Ming Leung Wai, ríkissaksóknari, fagnaði úrskurði dómarans og sagði að allir yrðu að vinna saman að því að tryggja að breytingin gangi vel fyrir sig. Hann gagnrýndi jafnframt stjórnvöld fyrir að taka þessa ákvörðun án þess að ráðfæra sig við þjóðina áður.
Þetta mun vera fyrsta breytingin af þessu tagi í heiminum frá því Nígería, Gana og Jemen tóku upp hægriumferð á áttunda áratug síðustu aldar. Tuilaepa Sailele Malielegaoi, forsætisráðherra Samóa, rökstuddi ákvörðun um að taka upp vinstriumferð með því, að þá myndu sömu reglur gilda á Samóa og í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi þar sem um 170 þúsund Samóar búa.
Um 180 þúsund manns búa á Samóa og hefur sjötti hluti þeirra tekið þátt í undirskriftasöfnun gegn breytingunni.
Þeir sem reka áætlunarbíla á eyjunum eru afar óánægðir með breytinguna því setja þarf nýjar dyr á rúturnar svo farþegar þurfi ekki að stíga út úr þeim á miðjum vegi. Þá hafa íbúar í að minnsta kosti einu þorpi hótað að stöðva alla umferð ef bílar aka þar á vinstri akrein. Frekari mótmælaaðgerðir eru fyrirhugaðar um helgina.
Erlent »
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. september 2009, Erlent Vinstriumferð tekin upp
- Þriðjudagur, 29. september 2009, Erlent Margir látnir á Samóaeyjum
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Erlent Hátt í hundrað látnir
- Mánudagur, 5. október 2009, Erlent Syrgja fórnarlömb flóðbylgju
- Þriðjudagur, 29. september 2009, Erlent Flóðbylgja skall á Samóa
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“



































