Lockerbiefanga skipt fyrir olíu
Sprengjumaðurinn frá Lockerbie, Abdel Basset al-Megrahi, kyssti á hönd Muammar Gaddafi leiðtoga Líbíu þegar hann kom til Tripoli 21. ágúst. REUTERS
Breska ríkisstjórnin taldi það varða „gríðarmikla hagsmuni Stóra Bretlands“ að gera sprengjumanninum í Lockerbie, Abdelbaset Ali Mohmed al-Megrah, kleift að snúa aftur til Líbíu, að því er sagði í bréfum háttsettra embættismanna sem lekið hafa til fjölmiðla. Sunday Times greinir frá þessu.
Ríkisstjórn Gordons Brown tók þessa ákvörðun eftir að snuðra hljóp á þráðinn í viðræðum olíufélagsins BP við Líbíumenn um olíuleit upp á margar milljónir sterlingspunda. Fljótlega á eftir leystist málið.
Jack Straw dómsmálaráðherra sendi kollega sínumKenny MacAskill í Skotlandi bréfin. Hann hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að heimila það að láta Megrahi lausan.
Bréfaskiptin sýna ljóst að ákvörðunin um að taka Megrahi með í samningum við Líbíu um að senda þarlenda fanga aftur heim tengdist breskum þjóðarhagsmunum.
Tvö bréf, dagsett með fimm mánaða millibili, sýna að upphafleg áætlun Straw dómsmálaráðherra var að halda Megrahi fyrir utan samning um fangaflutninga sem gerður var við Muammar Gaddafi. Samkvæmt honum áttu breskir og líbískir fangar að geta afplánað dóma í heimalöndum sínum.
Straw skipti síðan um skoðun þegar Líbía notfærði sér samningana við BP til að krefjast þess að Lockerbie sprengjumaðurinn yrði hluti af fangaskiptunum.
Greint var frá samkomulagi um leit að olíu og gasi, upp á allt að 15 milljarða punda, í maí 2007. Hálfu ári síðar var ekki búið að staðfesta samkomulagið. Straw skrifaði MacAskill 19. desember 2007 og greindi honum frá því að breska ríkisstjórnin ætlaði að falla frá þeirri ákvörðun að halda Megrahi fyrir utan fangaskiptin vegna þjóðarhagsmuna.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason ÞETTA VISSU ALLFLESTIR SEM EITTHVAÐ FYLGJAST MEÐ OG VAR LÖNGU ... -
Snjalli Geir Þetta er alltaf spruningin um peninga
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 30. ágúst 2009, Erlent Straw svarar Lockerbie ásökunum
- Laugardagur, 5. september 2009, Erlent Viðskiptahagsmunir höfðu áhrif
- Fimmtudagur, 20. ágúst 2009, Erlent Al Megrahi látinn laus
- Miðvikudagur, 26. ágúst 2009, Erlent Ekki við dauðans dyr
- Föstudagur, 21. ágúst 2009, Erlent Réðu viðskiptahagsmunir lausn Líbýumanns?
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































