Erlent
| mbl
| 31.8.2009
| 20:11
Lítið gert úr máli Cheney
Hvíta húsið gaf lítið fyrir hörð mótmæli Dick Cheney, fyrrum varaforseta Bandaríkjanna, vegna rannsóknar á meintum misþyrmingum leyniþjónustunnar CIA á föngum og dró í efa dómgreind hans á sviði utanríkismála.
„Þetta er sami söngurinn og við höfum heyrt nánast frá byrjun stjórnarinnar,“ sagði talsmaður Hvíta hússins, Robert Gibbs, eftir að Cheney gerði lítið úr rannsókninni og sagði hana vera rekna áfram af pólitískum hvötum og skaðlega þjóðarhagsmunum.
Gibbs sagði að Cheney hefði greinilega margar staðreyndir ekki á hreinu og lagði áherslu á orð Repúblikanans John McCain sem sagði yfirheyrsluaðferðir CIA vera pyntingar.
„Mig langar að bæta þessu við, ég er ekki viss um að spár Dick Cheneys í utanríkismálum hafi borið mikinn ávöxt síðustu átta árin, þær hafa hvorki verið jákvæðar né réttar, svo vítt sem ég veit,“ sagði hann.
Cheney sagði í viðtali við Fox News Channel síðastliðinn sunnudag að rannsóknin væri fáránlegt pólitískt bragð sem gæti skaðað þjóðarhagsmuni með því að fylla starfsmenn CIA ótta um mögulegar, löglegar hefndaraðgerðir.
Eric Holder, ríkissaksóknari, útnefndi í síðustu viku sérstakan rannsóknarmann sem á að athuga hvort þörf er á fullri rannsókn á yfirheyrslum CIA á meintum hryðjuverkamönnum.
Rannsóknin mun ná til útsendara leyniþjónustunnar erlendis sem grunaðir eru um að hafa farið yfir mörkin sem tilgreind voru í minnisblaði gerðu á tímum Bush stjórnarinnar eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur útilokað að þeir útsendarar leyniþjónustunnar sem fóru í góðri trú eftir línunum sem þeim voru lagðar í minnisblaðinu verði saksóttir.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Erlent »
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 31. ágúst 2009, Erlent Cheney vildi ráðast á Íran
- Sunnudagur, 15. mars 2009, Erlent Bandaríkin berskjaldaðri undir Obama
- Fimmtudagur, 23. apríl 2009, Erlent Rice samþykkti vatnspyntingar
- Föstudagur, 24. apríl 2009, Erlent Ætla að birta myndir af pyntingum
- Fimmtudagur, 13. nóvember 2008, Erlent Biden heimsótti Cheney
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“
Viking 1706 Fellihýsi til sölu
Er með vel farið Viking fellihýsi 2000 árgerð til sölu, 8,5 fet. Skoðað 2013. He...
Til sölu ný. Flutninga - Farangurskerra
Ný vönduð. Galvhúðuð klædd með álplötum. 2 hurðir stór afturhurð. max 750.kg Ber...
Stórt kvenreiðhjól 28" til sölu
Fallegt svart kvenreiðhjól til sölu
Það er 28". 3 gíra með körfu
Hannað fyrir ...
Frí auglýsing NÝR VEFUR
Bílaþjónusta.is bíður öllum að auglýsa bíla mótorhjól hjólhýsi og vagna frítt, s...