Hefðu orðið allt að 10.000 manns að bana
Mennirnir þrír, sem voru sakfelldir í dag fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk, hefðu getað orðið allt að 10.000 manns að bana ef þeir hefðu komið áformunum í framkvæmd, að sögn breska dagblaðsins The Daily Telegraph.
Karlmennirnir þrír voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að sprengja flugvélar í loft upp yfir Atlantshafi með heimatilbúnum sprengjuvökva. The Daily Telegraph segir að mennirnir hafi ætlað að granda sjö farþegaþotum og áformin hefðu getað orðið þrisvar sinnum mannskæðari en hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001.
Dómnum í máli mannanna er því fagnað í Bretlandi sem miklum sigri í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi.
Abdulla Ahmed Ali, 28 ára, er talinn hafa verið leiðtogi hópsins en auk hans voru Tanvir Hussain, 28 ára, og Assad Sarwar, 29 ára, fundnir sekir um sama glæp. Mennirnir voru handteknir árið 2006 og leiddi handtaka þeirra til þess að reglur um vökva í handfarangri í millilandaflugi voru stórhertar.
Mennirnir höfðu allir áður verið sakfeldir fyrir að leggja á ráðin um að drepa fólk en í þeim réttarhöldum komst kviðdómur ekki að niðurstöðu um það hvort þeir hefðu ætlað að sprengja upp flugvélar.
Sakfellingin nú gefur dómara færi á að dæma þá til þyngri refsingar en fyrri sakfelling. Mennirnir báru við réttarhöldin að þeir hefðu verið að undirbúa pólitísk mótmæli og að þeir hafi einungis haft í hyggju að sprengja litlar sprengur til að hræða fólk.
Bloggað um fréttina
-
Óskar Steinn Ómarsson 10.000 manns um borð ì 7 flugvèlum. -
-
Jenný Anna Baldursdóttir Óframinn glæpur -
Pétur Sig Haugalygi... -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Ég hrökk í kút -
Jón Valur Jensson Áform um þrefalt "9/11" fóru út um þúfur
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 7. september 2009, Erlent Ætluðu að sprengja upp flugvélar
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Erlent 26 dæmdir fyrir hryðjuverkastarfsemi
- Mánudagur, 14. september 2009, Erlent Ævilangt fangelsi fyrir hryðjuverkaáform
- Föstudagur, 10. apríl 2009, Erlent Skipulögðu páskaárásir
- Þriðjudagur, 26. ágúst 2008, Erlent Ekki nægar sannanir fyrir morðáformum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































