Segja Brown ekki hafa tekið U-beygju

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, heimsótti skóla í Hackney í London í morgun. stækka

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, heimsótti skóla í Hackney í London í morgun. Reuters

Skrifstofa Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur vísað því á bug að hann hafi tekið U-beygju í afstöðu sinni til beiðni aðstandenda fórnarlamba Írska lýðveldishersins (IRA) um að bresk yfirvöld styðji kröfu þeirra um skaðabættur frá yfirvöldum í Líbýu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Brown tilkynnti í gær að hann hygðist stofna nefnd til að aðstoða aðstandendur fórnarlambanna en fyrir ári skrifaði hann forsvarsmönnum þeirra bréf þar sem hann sagðist ekki telja viðeigandi að bresk yfirvöld þrýstu á yfirvöld í Líbýu í málinu. 

Talsmaður Brown sagði í dag að hann hefði verið fullkomlega samkvæmur sjálfum sér í málinu enda væri hlutverk nefndarinnar að veita aðstoð en ekki að stýra samningaviðræðum. Þá sagði hann ákvörðun um stofnun nefndarinnar vera nýlega en vildi ekki gefa upp hvort hún hefði verið tekin áður en bréfi Brown, til aðstandendanna, var lekið í fjölmiðla. 

 Ed Balls, menntamálaráðherra bresku stjórnarinnar, tók í sama streng í sjónvarpsviðtali í morgun. „Þetta er ekki U-beygja því eins og ég skil það þá sagði Gordon Brown það sama í gærkvöldi og hann hafði áður sagt við fjölskyldurnar,” sagði hann.

Þá sagði hann ekki mögulegt að breska stjórnin kæmi með virkum hætti að málinu þar sem hún hefði þegar samið um það við yfirvöld í Líbýu að láta það sem gerst hafi í fortíðinni kyrrt liggja og horfa fram á veginn. 

Balls sagði einnig að bresk yfirvöld hefðu reynt að sækja skaðabætur til Líbýumanna árið 2004, bæði fyrir aðstandendur fórnarlamba tilræða IRA og Lockerbie-tilræðisins. Líbýumenn útveguðu IRA sprengjuefni og hafa fallist á að greiða þremur Bandaríkjamönnum skaðabætur vegna þess.

„Það gekk ekki og það var mat ríkisstjórnarinnar þá, og er enn, að slíkt myndi ekki skila árangri og einungis spilla samskiptum sem snúast ekki bara um viðskipti og olíu heldur einnig samvinnu sem miðar að því að tryggja öryggi Breta gagnvart alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi," segir Balls.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »
Frá Ósló

Víðtækt verkfall í Noregi

07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
Í gær, 15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
RÝMINGARSALA Á VÖRUBÍLADEKKJUM
Rýmingarsala á vörubíladekkjum 315/80 R 22.5 75.000 + vsk. 13 R 22.5 kr. 39.500 ...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...
Hyundai Tuscon, 750.000 afsláttur
Til sölu gott eintak 06/2008 silfurgrár bensínbíll, vél 1975cc, fjórhjóladrifinn...
 
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Deiliskipulag á grundartanga
Tilkynningar
Deiliskipulag á Grundartanga...