Töldu sig komast betur af án barnanna

Amman og afinn með myndir af börnunum, Melissu og Jason, fyrir utan réttarsalinn í morgun stækka

Amman og afinn með myndir af börnunum, Melissu og Jason, fyrir utan réttarsalinn í morgun

Réttarhöld hófust í morgun í Frakklandi yfir pari sem er ákært fyrir að myrða börnin sín árið 2005. Parið á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi en þau töldu að það yrði auðveldara fyrir þau að komast út úr miklum skuldum án barnanna. Börnin tvö létust eftir að hafa borðað eitrað cannelloni á heimili sínu í borginni Marseille.

Marie-Helene Martinez og eiginmaður hennar, Jean-Paul Steijns, eru ákærð fyrir að hafa myrt Melissu, átta ára og Jason, sjö ára. Auk skuldafensins óttuðust þau að missa forræðið yfir börnunum til blóðföður þeirra, Antoine Correlejo, fyrri eiginmanns Martinez.

Þegar Martinez, 29 ára, gekk inn í réttarsalinn í morgun brást fjölskylda  blóðföðurins illa við og þurfti lögregla að skakka leikinn. Martinez neitar að hafa myrt börnin en Steijns hefur játað.  

Martinez ítrekaði fyrri orð sín í réttarsalnum í dag og sagðist hafa elskað börnin og hún hefði aldrei getað framið morðin.

Þegar lögregla kom í íbúð hjónanna í Marseille í kjölfar láts barnanna þá fann hún rotnað lík nýbura á svölunum. Hjónin eru hins vegar ekki ákærð fyrir morðið á því barni nú en ekki hefur verið hægt að úrskurða um dánarorsök barnsins vegna þess hve illa rotið líkið var.

Steijns játaði við réttarhöldin í morgun að hafa tekið þátt í morðunum en tók fram að hann hafi ekki verið einn að verki heldur hafi eiginkonan einnig myrt börnin.

„Ég er meðvitaður um að ég tók þátt í skelfilegu athæfi sem kostaði þrjú saklaus börn lífið," sagði hann og bætti við: „Ég hefði átt að koma í veg fyrir að hún fremdi glæpinn."

Steijns heldur því fram að kona hans hafi neytt hann til þess að myrða börnin þegar útlit var fyrir að þau myndu missa íbúðina eftir að hafa verið í vanskilum með greiðslu á leigunni í nokkra mánuði.

Kvöldið 18. september 2005 kvörtuðu þau Melissa og Jason yfir því að maturinn sem móðir þeirra og fósturfaðir höfðu borið fram, kjötfyllt cannelloni, væri biturt á bragðið og fóru í rúmið án þess að klára af diskum sínum, samkvæmt frétt franska dagblaðsins Le Parisien.

Dóu þau um nóttina og fundust lík þeirra, falin í skotti bifreiðar mánuði síðar, að sögn Steijns.

„Ég dó ásamt Melissu og Jason þessa nótt," sagði  Steijns í réttarsalnum. „Það geta engin orð lýst tilfinningum mínum."

Amma barnanna í föðurætt brotnaði saman við réttarhöldin í morgun og sagði við fréttamenn að hún vonaðist til þess að hjónin yrðu dæmd í lífstíðarfangelsi. Úrskurður dómara verður væntanlega kveðinn upp á föstudag.

Lögfræðingur Steijns, Fabien Perez, sagði í viðtali við Le Parisien að Martinez hafi stjórnað skjólstæðing sínum og hún hefði sagt honum að eina leiðin fyrir þau til þess að hefja nýtt líf væri að fórna börnunum. Aftur á móti heldur lögfræðingur hennar því fram að Steijns að hann hafi staðið á bak við morðin.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »
Frá Ósló

Víðtækt verkfall í Noregi

07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
Í gær, 15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SKRIFBORÐSSTÓLL GOTT VERÐ
er með nokkra góða stóla verð frá 5 þús sími 869-2798...
Barstólar
Til sölu 2 nýlegir barstólar. Tilboð óskast. Uppl. í síma 863-7879 eftir kl. ...
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
Nissan Patrol árg. 2000 til sölu
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Verð 1.350, e...
 
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...