Skemmtigarður í landnemabyggð
Byggingarleyfi sem Ehud Barak varnarmálaráðherra Ísraels, veitti vegna bygginga í landnemabyggðum gyðinga á Vesturbakkanum í gær eru í raun leyfi sem þegar höfðu verið samþykkt, samkvæmt heimildum ísraelska blaðsins Ha’aretz.
Ýmsar ástæður hafa hins vegar verið fyrir því að leyfin hafa ekki verið formlega staðfest fyrr en nú. Á nokkrum þeirra byggingasvæða sem um ræðir hefur undirbúningur framkvæmda þegar verið hafinn.
Samkvæmt heimildum Ha’aretz er það skilyrði sett fyrir leyfisveitingunum nú að framkvæmdir við byggingarnar hefjist innan tveggja mánaða. Að öðrum kosti falla þau úr gildi.
Barak veitti formlega 455 byggingarleyfi í gær eftir að ríkisstjórn landsins samþykkti tillögu Benjamin Netanyahu forsætisráðherra um að þær yrðu samþykktar á sunnudag.
Um er að ræða 149 leyfi til bygginga íbúða í Har Gilo, 12 í Etzion í Alon Shvut, 84 í Modi'in Ilit, 76 í Agan Ha'ayalot í Givat Ze'ev, 89 í Ma'aleh Adumim og 25 í Kedar. Flestar eru eru þessar landnemabyggðir í nágrenni Jerúsalem en einnig var veitt leyfi til byggingar 20 íbúða í Maskiot í Jórdanárdalnum.
Einnig veitti Barak leyfi fyrir byggingu skemmtigarðs í Ariel og skóla í Har Adar en Ísraelar hafa sagt umrædd byggingarleyfi nauðsynleg til að tryggja eðlilega þróun landnemabyggðanna.
Palestínumenn hafa brugðist ókvæða við fréttum af því að umræddar framkvæmdir hafi verið samþykktar og segja það draga mjög úr líkum á því að friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna hefjist á ný.
Bandaríkjastjórn er hins vegar sögð hafa fallið frá andstöðu við framkvæmdirnar gegn því að ríkisstjórn Ísraels lýsi því yfir innan tíðar að frekari framkvæmdir í gyðingabyggðum á Vesturbakkanum hafi verið fryst.
Erlent »
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 18. maí 2009, Erlent Ný gyðingabyggð á Vesturbakkanum
- Mánudagur, 7. september 2009, Erlent „Palestínumenn missa alla trú"
- Miðvikudagur, 27. maí 2009, Erlent Ólöglegar gyðingabyggðir rifnar
- Mánudagur, 7. september 2009, Erlent Barak samþykkir 366 byggingar
- Mánudagur, 6. júlí 2009, Erlent Lieberman gefur eftir
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“



































