Dökkar horfur í Hollandi

Andre Rouvoet, ráðherra fjölskyldumála, Wouter Bos og Jan Peter Balkenende forsætisráðherra Hollands í þinginu í ... stækka

Andre Rouvoet, ráðherra fjölskyldumála, Wouter Bos og Jan Peter Balkenende forsætisráðherra Hollands í þinginu í dag. MICHAEL KOOREN

Hollensk stjórnvöld ætla að draga úr opinberum útgjöldum sem nemur  um 20% til þess að takast á við gríðarlegan fjárlegahalla vegna efnahagskreppunnar. Að sögn Wouter Bos, fjármálaráðherra, þurfa öll ráðuneyti draga saman um 20% fyrir árið 2011. Hollenska þingið kom saman í dag eftir sumarfrí og kynnti Bos fjárlög hollenska ríkisins fyrir næsta ár.

Varaði Bos við því að niðurskurðurinn yrði bæði erfiður og sársaukafullur. „Þetta verður erfitt," sagði Bos á þinginu í dag og sagði þetta niðurstöðu þess að verja landið þegar efnahagskreppan skall á. Nú sé komið að skuldadögum. „Hjá því verður ekki komist að við verðum að fara fram á framlög frá öllum," sagði Bos. 

Ekki eru nema tólf mánuðir síðan er Bos tilkynnti að efnahagur landsins væri mjög góður og að ríkissjóður yrði rekinn með hagnaði árið 2009 og næstu þrjú ár á eftir.

En nú hljóðar fjárlagahallinn fyrir árið 2010 upp á 36,5 milljarða evra sem er svipað og 6,3 af vergri landsframleiðslu. Opinberar skuldir verði 381 milljarður evra á næsta ári sem samsvarar 65,7% af vergri landsframleiðslu. Þar af eru um 50 milljarðar evra stuðningur stjórnvalda til fjármálageirans.

Ekki er gert ráð fyrir hagvexti á næsta ári og að atvinnuleysi mælist 8%. „Það þýðir að yfir 600 þúsund manns verða án atvinnu," að því er segir í fjárlögum hollenska ríkisins.  

Maxima krónprinsessa, Willem-Alexander krónprins og Beatrix drottning voru viðstödd þingsetninguna í dag.

Maxima krónprinsessa, Willem-Alexander krónprins og Beatrix drottning voru viðstödd þingsetninguna í dag. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »
Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Rockwood fellihýsi
Rockwood 10 feta, árgerð 2007. Fortjald, sólarsella, 2 gaskútar. Skoðað 2012. Ve...
Til sölu Toyota RAV4 2,0 árg. 2002
Sjálfskiptur, bensín. Dökkrauður. Ekinn aðeins 142 þ. Dráttarkúla. Vel með farin...
Frí auglýsing NÝR VEFUR
Bílaþjónusta.is bíður öllum að auglýsa bíla mótorhjól hjólhýsi og vagna frítt, s...
 
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...