Valíum-herferð fyrir þýska kjósendur

Morgunblaðið Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur - jmv@mbl.is

Leiðindi og lítil tilþrif þóttu einkenna sjónvarpskappræður Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og helsta keppinautar hennar um kanslarasætið, utanríkisráðherrans Franks-Walters Steinmeiers.

Niðurstöður skoðanakannana vegna þingkosninganna, sem haldnar verða hinn 27. september, sýna þó að leiðindin báru töluverðan árangur. Kristilegir demókratar (CDU) Angelu Merkel bættu nefnilega við sig tveimur prósentustigum í kjölfarið og jafnaðarmenn (SPD) Steinmeiers þremur stigum.

Óánægjuraddir heyrast frá flokkssystkinum Merkel sem segja kanslarann ekki hafa gefið nægilega skýrar línur í baráttunni. Fjölmiðlar segja baráttuna eins og háða undir áhrifum róandi lyfja og hefur hún einnig verið kölluð „þægindaherferðin“.

Brostnir draumar enn á ný?

Áhrifamenn innan systurflokks Merkel, CSU, eru að sögn Süddeutsche Zeitung heldur farnir að ókyrrast. Þeir eru hræddir um að ósköpin frá því í þingkosningunum 2005 endurtaki sig. Þá var staðan skömmu fyrir kosningar alveg eins og hún er nú rúmri viku fyrir kosningar: SPD átti í vök að verjast en CDU og Frjálslyndir demókratar (FDP) voru nokkuð öruggir með að ná takmarki sínu um meirihluta á þinginu.

Niðurstöður kosninganna voru langvarandi áfall: „Kvöldið áður hringdu kosningarýnar í mig og sögðu mér að hafa engar áhyggjur,“ segir liðsmaður CDU við Die Zeit. Niðurstöðurnar gerðu drauma um stjórnarsamstarf með frjálslyndum að engu en Merkel varð kanslari í stjórn með jafnaðarmönnum.

Draumar Merkel um hreinan þingmeirihluta með frjálslyndum þykja hafa dofnað nokkuð. Frjálslyndir komu illa út úr nýrri skoðanakönnun í vikunni og misstu tvö prósentustig. Frjálslyndir og Kristilegir demókratar eru því nú með 49% fylgi en Jafnaðarmenn, Græningjar og Vinstriflokkurinn ná samtals 45%.

Kristilegir demókratar virtust vakna af dásvefninum um stundarsakir í gær er þeir kynntu skattastefnu sína sem þykir þó að mestu leyti snúast um gagnrýni á skattastefnu jafnaðarmanna. Farið er yfir skattaáætlanir Steinmeiers og félaga í fimm liðum og lögð áhersla á að þau áform muni koma illa niður á millistéttinni. Útspil sem líklega á að undirstrika betur að CDU vilji ekki halda stjórnarsamstarfinu áfram með jafnaðarmönnum.

Angela Merkel gælir nú við að sækja G-20-ráðstefnuna í Pittsburg í næstu viku, aðeins fjórum dögum fyrir kosningar. Óánægjuraddir segja það misráðið, eitthvað gæti farið úrskeiðis og sæti kanslarakandídatinn þá við hliðina á Barack Obama og gæti ekkert aðhafst.

Smokkar í flokkslit

Brauðristar, smokkar fyrir samkynhneigða jafnt sem gagnkynhneigða, snýtibréf, plástrar, upptakarar, varasalvi og skóáburður.

Í fyrsta sinn í ár hafa allir flokkarnir sem bjóða fram til þýsku þingkosninganna eigin netverslanir fyrir auglýsingavarning. Jafnaðarmenn þykja í fararbroddi hvað þetta varðar og eru um 300 vörutegundir til sölu, SPD-brauðristar hafa verið til sölu í um tvö ár.

Kristilegir demókratar eru heldur íhaldssamari og halda sig við hefðbundna bolla og kúlupenna. Vinstriflokkurinn býður m.a. sósíalískar bókmenntir og fána.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »
Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
Í gær, 15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Flottur fatalager til sölu
Hentar í verslun og eða heimasölu, ekki missa af að skoða þennan lager, s. 77366...
Nuddbekkjalök,Andlitslök,Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,
Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,Nuddbekkjalök,Andlitslök,N...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
Húsnæði óskast til leigu - 120fm-200fm
Leita að húsnæði fyrir tvö yfir fimmtugt - róleg og reglusöm. Óska eftir íbúð...
 
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...