Helltu milljónum lítra mjólkur
Aukin harka færist í mótmælaaðgerðir evrópskra kúabænda. Franskir og þýskir kúabændur helltu í dag niður milljónum lítra mjólkur við landamæri Frakklands og Þýskalands. Með því vildu þeir mótmæla ört lækkandi afurðaverði í Evrópu.
Verð mjólkurafurða hefur hríðfallið í Evrópu að undanförnu vegna snarminnkandi eftirspurnar í kjölfar efnahagskreppunnar. Dæmi eru um að verð hafi lækkað um allt að helming á undanförnum 18 mánuðum.
Kúabændur í Austurríki, Belgíu, Lúxemborg, Hollandi, Sviss og á Ítalíu og Spáni hafa staðið fyrir mótmælaaðgerðum. Tugir þúsunda kúabænda neita að leggja inn mjólk hjá afurðastöðvum og kjósa frekar að hella henni niður. Í dag bættust svo þýskir og franskir bændur í hóp aðgerðasinna en þessi tvö lönd eru mestu mjólkurframleiðendur innan Evrópusambandsins.
Bændurnir komu saman við landamæri Frakklands og Þýskalands og helltu milljónum lítra mjólkur í ána Rín. Að því loknu óku bændurnir á dráttarvélum sínum yfir landamærin til Þýskalands. Þar flóði mjólk úr tönkum bændanna yfir akra.
Evrópusambandið hafði gefið vilyrði fyrir aðgerðum til stuðnings bændunum. Landbúnaðarráðherrar Evrópusambandslandanna gátu hins vegar ekki komið sér saman um auknar greiðslur til kúabænda á fundi sínum í Brussel 7. september. Síðan þá hafa aðgerðir bændanna stigmagnast. Þeir vilja að ESB grípi til aðgerða nú þegar og hafa lýst yfir mjólkurverkfalli þar til aðgerðir hafa verið kynntar.
Evrópusambandið hefur gefið það út að kvótar í mjólkurframleiðslu verði minnkaðir um eitt prósent á ári og að kvótakerfið verði lagt af árið 2015. Evrópuráðið hefur reynt að sefa bændur og lofað þeim takmarkaðri fjárhagsaðstoð en umleið sagt að hvergi verði hvikað frá fyrri ákvörðun um aflagningu kvótakerfis í mjólkurframleiðslu innan ESB árið 2015.
Bloggað um fréttina
-
Jakob Falur Kristinsson Mjólk -
Garðar Valur Kaldur hrollur -
Siggi Lee Lewis Súrmjólk! -
Guðrún María Óskarsdóttir. Takmörkuð fjárhagsaðstoð af hálfu Evrópusambandsins til bænda. -
Þórarinn Þ Gíslason ÞEIR ERU EKKI BLANKIR FRÖNSKU OG ÞÝSKU BÆNDURNIR Í ESB. ... -
Sigurður Haraldsson Bjargar ekki Íslandi. -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Er þetta draumur Jóhönnu og Össurar? -
Ægir Óskar Hallgrímsson ESB í öllu sínu veldi.
Erlent »
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
-
260 dauðir höfrungar á land
- Leitað að lausn á Maldíveyjum
- Hældi Breivik á Facebook
- Dönsk ungmenni vilja ekki í sturtu
-
Áframhaldandi ógnaröld í Homs
- Grikkjum sett hörð skilyrði
- Kvenhermenn nær vígvellinum
-
FBI birtir skjöl um Steve Jobs
-
Obama hrósaði Monti
Fimmtudagur, 9.2.2012
-
Undirbúa olíudælingu úr skipinu
- Átta ára barn meðal látinna
- Leyfa fyrsta kjarnorkuverið frá 1978
- Ætla ekki að færa andstöðunni vopn
- Borin kennsl á 162 lík
- Leggja fram kvörtun hjá SÞ
- Mossad þjálfar andófsmenn í Íran
- Verkalýðsfélög boða verkföll
- Færri fæðingar í Danmörku
- Garzón sakfelldur
- Rússar efins um þjóðabandalag
- Grikkir hafa náð niðurstöðu
- Dóná ísilögð í sex löndum
-
Mannskæð bílsprengja í Taílandi
- Slóvakar styðja Grikki ekki frekar
- Myrti stuðningsfulltrúa í Danmörku
- Cameron vill læra af Íslandi
-
Handtekinn forseti kom til Íslands
-
Bygging stóðst ekki kröfur
- Breivik var tölvuleikjasjúkur
- Hópnauðgun vekur deilur í Mósambík
- Skotmaðurinn er tvítugur
- Foringi Al-Qaeda í Pakistan látinn
- Ástralskir neita leynifangelsi
- Fjölskylda forsetans flúin
- Fimm konur drepnar af hlébarða
- Grikkir vongóðir um björgun
Miðvikudagur, 8.2.2012
-
Biður fyrir fórnarlömbum kulda
- Beit fréttakonu í beinni útsendingu
- Þernur fái neyðarhnappa
-
Neðanjarðarlest út af sporinu
- Fjölskylduharmleikur á Grænlandi
- Goðafoss um Saxelfi ísi lagða
- Bensínið aldrei dýrara í Danmörku
- Búið að handtaka árásarmanninn
- Dvínandi vonir Rúmena og Búlgara
- Sjálfsmorðssprengja í Sómalíu
- Fjölgar mest í Kanada
-
Hinn ástsæli og hinn stórfenglegi
- Sendi 11 ára nemanda sínum ástarbréf
- Þrír myrtir á Grænlandi
- Atvinnuleysi eykst
- Neyðarhjálp með þyrlum í Bosníu
- Methiti á Svalbarða
- Svaf hjá nemanda en sleppur við fangelsi
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 12. september 2009, Erlent Boða mjólkurverkfall
- Miðvikudagur, 23. september 2009, Erlent ESB-ráðherrar þinga vegna mjólkurstríðs
- Fimmtudagur, 23. október 2008, Erlent 20 ESB ríki framleiddu ekki upp í kvóta
- Mánudagur, 5. október 2009, Erlent Ræða mjólkurvandann í Brussel
- Miðvikudagur, 16. september 2009, Erlent Mjólkin flæðir í Belgíu
-
Eyjólfur: Vilja sýna sig og sanna
-
Keppt í hugviti
-
Blaðamannafundur Lars Lagerbäck
-
Heimir: Erfiðara að velja Japanshópinn
-
Lagerbäck: Vildi taka þessa áhættu
-
Skart stöðvað á leið úr landi
-
Enn gýs í Eldhringnum
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
Stjórnunarstörf
Forstöðumaður Þekkingarmiðstöðvar...



































