Lífstíðarfangelsi fyrir morð á lesbíu

Eudy Simelane stækka

Eudy Simelane

Baráttusamtök samkynhneigðra í Suður-Afríku fagna dómi yfir karlmanni sem var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt og tekið þátt í hópnauðgun á þekktri knattspyrnukonu þar í landi, Eudy Simelane. Hún var þekkt fyrir að berjast fyrir réttindum samkynhneigðra en hún var ein af fyrstu konunum í bænum KwaThema sem ekki fór leynt með það að vera lesbía.

Á vef BBC kemur fram að dómarinn, Ratha Mokgoathleng, hafi lýst árásinni sem hrottalegri og ósæmilegri en lík Simelane fannst 28. apríl í fyrra við skurð úti á akri. Henni hafði verið nauðgað og hún stungin með hnífi 25 sinnum. Hún var 31 árs. Yfir þrjátíu lesbíum hefur verið nauðgað og þær myrtar í árásum sem talið er að tengist kynhegðun þeirra. Nýverið kom fram á vef BBC að hugtakið „leiðréttingarnauðgun“ sé notað til að skýra hugarfar ofbeldismanna, sem nauðgi lesbíum og telji sig nánast í fullum rétti.

Dómarinn í málinu segist telja að Simelane og árásarmennirnir hafi þekkst en ráðist var á hana eftir að hún yfirgaf bar. Var síma hennar, íþróttaskóm og peningum rænt.

Themba Mvubu, sem hafði lýst yfir sakleysi sínu af öllum ákæruliðum, var dæmdur í lífstíðarfangelsi en tveir félagar hans voru sýknaðir. Fjórði maðurinn, Thato Petrus Mpithi, játaði á sig morðið og rán fyrr á árinu en hann var dæmdur í 32 ára fangelsi fyrir brot sín.

Í grein sem birtist nýverið í sunnudagsblaði Morgunblaðsins er fjallað um morðið á Simelane. Þar kom meðal annars fram að  fáum stöðum í heiminum eru nauðganir algengari en í Suður-Afríku og á meðal þeirra ríkja, sem taka þátt í starfi alþjóðalöggæslunnar Interpol, eru engin dæmi um verra ástand.

Samkvæmt tölum Interpol kæra um 150 konur í Suður-Afríku nauðgun á hverjum degi. Talið er að fjöldinn sé í raun miklu meiri, þar sem margar kjósi að kæra ekki. Ástæðurnar fyrir því eru margvíslegar, rétt eins og í öðrum löndum, en ein veigamikil er sú, að konurnar vita að rannsóknir nauðgunarmála eru fjarri því að vera forgangsatriði hjá lögreglu. Komi málin til kasta dómstóla á annað borð er sakfelling ólíkleg, eða dómar vægir.

Hópnauðganir eru algengar, svo algengar að til er hugtak yfir þann sem finnur fórnarlambið, „marhasimani“. Ungur maður útskýrði hlutverkið þannig, í samtali við BBC: „Marhasimani er sá sem fer á klúbb, kaupir nokkra drykki fyrir konu og fer svo með henni og hann og vinir hans eiga mök við hana.“

Vinirnir fela sig gjarnan í sama herbergi og marhasimani og stúlkan. Þegar sá fyrsti er búinn að hafa mök við hana taka þeir við. „Það er dimmt í herberginu og stelpan veit ekki einu sinni að þetta er annar náungi,“ sagði viðmælandi BBC.

Þegar fréttamaður reyndi að leiða honum og félaga hans fyrir sjónir að hegðun þeirra jafngilti hópnauðgun, neituðu þeir harðlega. „Þetta snýst ekkert um stelpuna. Við kaupum drykki fyrir hana. Og þeir eru dýrir. Þetta er ekki hópnauðgun. Ókei, stundum þurfum við að dópa hana og allt, en það gerist ekki alltaf.“

Sjá nánar

Vefur BBC

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »
Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VANTAR HERBERGI GEGN UMÖNNUN.
VILDI GJARNAN SJÁ UM EINSTAKLING SEM ÞARF AÐSTOÐ HEIMA GEGN GÓÐU PLÁSSI TIL AÐ V...
KÍNVERSKAR SILKIHÆNUR OG ÝMISLEGT FL....
Eigum einungis eftir 2 stk af þessum frábæru fuglum. Báðar hvítar. Seljast á 10 ...
Kawasaki KLE 500
Til sölu Kawasaki árgerð 2007, ekið 6035km. Allt í einum pakka,hjól, jakki, bux...
Stærri stærðir - restar á frábæru verði
Skvísan er að loka netversluninni og síðustu flíkurnar eru á ótrúlega góðu verði...
 
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...