Fíll á flótta

Sex manns slösuðust þegar fíll, sem notaður var við helgiathöfn í Hindúamusteri í suðurhluta Indlands, fældist og hljóp upp í áhorfendastæði. Fílahirðunum tókst á endanum að róa dýrið.

Mikill mannfjöldi fylgdist með árlegri helgiathöfn í Tirupati Balaji musterinu í gær. Fíllinn fældist þegar byrjað var að hringja bjöllum og einnig er talið að hann hafi verið órólegur vegna mannfjöldans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert