Hátt í hundrað látnir
Að minnsta kosti 85 eru látnir á Samóaeyjum og á þriðja tug manna á Bandarísku Samóa er saknað í kjölfar flóðbylgjunnar í Kyrrahafi í gærkvöldi í kjölfar öflugs jarðskjálfta. Að sögn yfirvalda eru að minnsta kosti 145 manns slasaðir og heilu þorpunum virðist hafa skolað í burtu. Þúsundir eru heimilislausar.
Byggingar hrundu þegar jarðskjálfti, sem mældist 8 stig á Richter, reið yfir og þúsundir eyjarskeggja flúðu frá strandhéröðum upp í fjallshlíðar. Í kjölfarið reið yfir flóðbylgja, sem að sögn sjónarvotta var þriggja til níu metra há og jafnaði heilu þorpin við jörðu.
Að minnsta kosti 20 létu lífið á Bandarísku Samóa, þar sem um 65 þúsund manns búa. Þá létu að minnsta kosti 65 lífið á Samóa, þar sem um 180 þúsund manns búa. Óstaðfestar fréttir hafa einnig borist af manntjóni á eyjunni Tonga, sem er ekki langt frá.
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði að um væri að ræða meiriháttar náttúruhamfarir og Tuilaepa Sailele Malielegaoi, forsætisráðherra Samóa, sagði að þetta væri gríðarlegt áfall.
„Það hefur svo margt glatast, svo margt fólk látið lífið. Ég er afar sorgmæddur vegna alls þessa," sagði hann við áströlsku fréttastofuna AAP.
Misa Telefoni, aðstoðarforsætisráðherra, sagði að íbúar hefðu fengið afar lítinn tíma til að forða sér undan flóðbylgjunni, sem skall á eyjunum um 20 mínútum eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Gríðarlegt tjón hefði orðið á ferðamannastöðum og öðrum þéttbýlisstöðum við ströndina.
Apia, höfuðborg Samóa, var rýmd eftir jarðskjálftann og flóðbylgjuviðvaranir í kjölfarið. Þúsundir íbúa flýttu sér að komast á hærri staði innar á eyjunni.
Fjöldi eftirskjálfta hefur orðið á svæðinu eftir stóra skjálftann, sem reið yfir í gærkvöldi. Flestir eftirskjálftanna hafa verið um og yfir 5 stig á Richter.
Myndasyrpa: Flóðbylgja á Samóaeyjum
Tugir létu lífið á Samóaeyjum þegar öflugur jarðskjálfti varð undir hafsbotni í Suður-Kyrrahafi og flóðbylgja skall á eyjunum í kjölfarið. Heilu þorpunum skolaði í burtu. Þúsundir eru heimilislausar.
Birtingardagur: Miðvikudaginn, 30. september 2009
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 29. september 2009, Erlent Margir látnir á Samóaeyjum
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Erlent Íslenskur sendifulltrúi á staðnum
- Þriðjudagur, 29. september 2009, Erlent Flóðbylgja skall á Samóa
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Erlent Viðvörun við flóðbylgju afturkölluð
- Laugardagur, 29. ágúst 2009, Erlent Til vinstri hvað sem það kostar
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































