Fjöldamorðingi handtekinn í Úganda
Á vef BBC kemur fram að fréttamenn telja að Nizeyimana hafi verið á ferðalagi til Kenýa frá Lýðveldinu Kongó er hann var handtekinn í höfuðborg Úganda, Kampala. Á hann að hafa verið með fölsuð persónuskilríki á sér.
Um 800.000 Tútsar og Hútúar voru myrtir af hersveitum Hútú á aðeins 100 dögum árið 1994. Idelphonse Nizeyimana var yfirmaður í her Rúanda á tímum þjóðernishreinsananna. Er hann talinn hafa komið á fót sérstakri aftökusveit innan hersins til þess að annast fjöldamorðin.
Meðal fórnarlamba hans var drottning Tútsa, Rosalie Gicanda, sem var ekkja Mutara III konungs Rúanda. Hann lést árið 1959 skömmu áður en landið fékk lýðræði. Samkvæmt skýrslu mannréttindasamtakanna Human Rights Watch frá árinu 1999, handtóku Hútu hermenn hana á heimili hennar og skutu hana til bana við ríkislistasafnið. Jafnframt voru nokkrar konur sem gættu drottningarinnar myrtar. Drottningin var um áttrætt þegar hún var myrt.
Talsmaður lögreglunnar í Úganda staðfesti við BBC að Nizeyimana hafi verið handtekinn fyrr í dag og að hann hafi verið fluttur til glæpadómstólssins í málefnum Rúanda í Arusha í Tansaníu. Hann á yfir höfði sér ákæru um glæpi gegn mannkyninu og þjóðarmorð.
Meðal þess sem hann er ákærður fyrir er að hafa fyrirskipað hermönnum að ræna hópi flóttamanna, þar á meðal 25 börnum, úr klaustri. Ekkert hefur spurst til flóttamannanna síðan. Jafnframt að hafa fyrirskipað rán og morð á tveimur prestum.
Hann á að hafa látið setja upp vegartálma þar sem persónuskilríki þeirra sem áttu leið um voru skoðuð. Ef Tútsi var á ferð var hann myrtur. Hermenn á vegum Nizeyimana fóru um háskólann í Butare þar sem bæði fræðimenn og nemendur voru skotnir af handahófi. Með því vonaðist hann til þess að hægt væri að fækka Tútsum með háa greindarvísitölu.
Erlent »
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Erlent Meintur fjöldamorðingi handtekinn í Noregi
- Miðvikudagur, 27. maí 2009, Erlent Heimila framsal á meintum fjöldamorðingja
- Föstudagur, 11. júní 2010, Erlent Prestur sekur um fjöldamorð
- Fimmtudagur, 9. júlí 2009, Erlent Framselja meintan þjóðarmorðingja
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Erlent Nkunda handtekinn í Rúanda
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
-
„Það má dúndra“



































