Fréttaskýring: Vill búa Breta undir stórfelldan sparnað

stækka

Reuters

Morgunblaðið Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is

George Osborne, talsmaður breska Íhaldsflokksins í fjármálum, kynnti í gær áform forystumanna flokksins um sparnaðaraðgerðir til að minnka fjárlagahallann. Osborne sagði í ræðu á flokksþingi íhaldsmanna í Manchester að flokkurinn hygðist m.a. frysta laun um fjögurra milljóna ríkisstarfsmanna í eitt ár ef flokkurinn kemst til valda í næstu kosningum. Hægt verður þó að hækka laun breskra hermanna í Afganistan og ríkisstarfsmanna með minna en 18.000 pund (3,6 milljónir króna) í árslaun. Gert er ráð fyrir því að um milljón ríkisstarfsmanna geti fengið launahækkun.

Með þessum áformum gengur Íhaldsflokkurinn lengra en stjórn Verkamannaflokksins sem kynnti í fyrradag áform um að frysta laun 750.000 launahæstu starfsmanna ríkisins, þeirra á meðal dómara, stjórnenda ráðuneyta, framkvæmdastjóra og lækna.

Osborne sagði að áætlað væri að öll sparnaðaráform Íhaldsflokksins myndu spara alls 23 milljarða punda (4.600 milljarða króna) á næstu fimm árum, eða allt að 7 milljarða punda (1.400 milljarða króna) á ári.

Auk launafrystingarinnar er m.a. ráðgert að minnka rekstrarkostnað ráðuneyta um þriðjung. Áætlað er að það spari rúma þrjá milljarða punda (600 milljarða kr.) og verði til þess að þúsundir manna missi vinnuna, að sögn The Daily Telegraph.

Íhaldsflokkurinn stefnir einnig að því að takmarka eftirlaun hátt settra embættismanna við 50.000 pund (tíu milljónir króna) á ári.

Samkvæmt sparnaðaráformum flokksins á enginn nýr embættismaður að geta fengið hærri laun en forsætisráðherrann nema með sérstöku leyfi fjármálaráðuneytisins. Þá verða laun ráðherra og aðstoðarráðherra lækkuð um 5%, stefnt er að því að þingmönnum verði fækkað um 10% og nýir þingmenn eiga ekki að fá sömu lífeyrisréttindi og núverandi þingmenn.

„Erum öll í þessu saman“

Osborne sagði að hann gæti ekki hugsað sér við þessar aðstæður að lækka skatta á hátekjufólk, sem stjórn Verkamannaflokksins hækkaði í 50%. Hann lagði áherslu á að efnamenn gætu ekki skorast undan því að axla byrðarnar með öðrum. „Við erum öll í þessu saman,“ sagði hann nokkrum sinnum í ræðunni.

Osborne sagði að áformum um að hækka eftirlaunaaldur karlmanna úr 65 í 66 ár yrði flýtt, hugsanlega til ársins 2016. Stefnt er að því að eftirlaunaaldur kvenna hækki í 66 ár fyrir árið 2020, en hann er nú 60 ár. Gangi þetta eftir þurfa um 2,5 milljónir Breta á aldrinum 48-57 ára að vinna a.m.k. ári lengur en þeir bjuggust við.

Gert er ráð fyrir því að fjárlagahalli Bretlands hækki í 175 milljarða punda í ár og stjórn Verkamannaflokksins hefur lofað að minnka hann um helming ekki síðar en árið 2014. Íhaldsflokkurinn hyggst minnka hallann hraðar með sparnaðaraðgerðunum.

George Osborne.

George Osborne.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »
Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
FRÁBÆRT SUMARHÚS TIL LEIGU
Frábært sumarhúsi á góðum stað. Stutt á 3 golfvelli. Frítt í einn völl. Uppl. í ...
Palomino Colt fellihýsi til sölu
Mjög vel með farið 9 feta Palomino Colt árg 2002 ásamt fortjaldi+dúk. Sólarsella...
BÍLL NR 111310
Toyota Land Cruiser 120 VX Nýskr. 9/2005, ekinn 153 þ. km, d...
Til sölu ktm sx 2006 árgerð
Mjög gott hjól, nýlegur stimpill, ný dekk, nýtt lìmmiðakitt, ìsdekk geta fylgt. ...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eyst
Tilkynningar
Kynning skipulagstillöguí Ra...