Fyrirliði gyðingauppreisnar látinn

Marek Edelman var níræður þegar hann lést en hann var um tvítugt þegar hann leiddi ... stækka

Marek Edelman var níræður þegar hann lést en hann var um tvítugt þegar hann leiddi uppreisn pólskra gyðinga gegn nasistum.

Þúsundir syrgjenda voru í dag viðstaddir jarðarför hins pólska Marek Edelman, síðasta fyrirliða hinnar misheppnuðu uppreisnar gyðinga gegn nasistum í ghettóum Varsjár árið 1943.

Edelman spilaði lykilhluver í gyðingaupprisninni og lét síðar einnig til sín kveða í harðri gagnrýni gegn kommúnistastjórninni sm við tók í Póllandi eftir stríðið. Hann lést í síðustu viku 90 ára að aldri en í Póllandi er litið á andlát hans sem endalok tímabils í sögu þjóðarinnar. 

„Vissum að við gætum aldrei unnið“

Eftir innrásina í Pólland árið 1939 var pólskum gyðingum smalað saman og þeir einangraðir í ghettóum víðsvegar um landið, áður en hafist var handa við að útrýma þeim skipulega í helförinni. Þann 19. apríl 1943 hófu nasistar að tæma endanlega ghettoið í Varsjá, þar sem aðeins 60.000 manns voru eftir að meirihluti þeirra 450.000 gyðinga sem upphaflega var haldið þar hafði verið fluttur í útrýmingarbúðirnar í Treblinka. 

Þennan dag tóku hinsvegar nokkur hundruð ungra gyðinga í getthóinu sig saman og hófu uppreisn. „Við vissum það fullvel að við gætum aldrei unnið“ sagði Edelman í viðtali við AFP árið 2008. „Þetta var hinsvegar táknrænt fyrir baráttu fyrir frelsinu. Táknrænt fyrir mótstöðu gegn nasismanum, fyrir því að láta ekki kúga sig.“ Gyðingarnir voru lítið sem ekkert vopnaðir en reiddu sig á heimatilbúnar bensínsprengjur og nokkrar byssur sem smyglað hafði verið inn fyrir ghetto-múranna.

Varsjá-uppreisnin varð stærsta uppreisn gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni og varði í þrjár vikur áður en nasistar náðu yfirhöndinni. Edelman slapp á lífi og tók ári síðar þátt í annarri misheppnaðri uppreisn í Varsjá um það leyti sem Rússneski herinn nálgaðist borgina.

Minningarathöfn um Edelman fór fram í dag við minnisvarða um gyðingauppreisnina sem reistur var 1948 nærri þeim stað þar sem síðasti bardaginn fór fram. Líkfylgdin gekk svo í gegnum hverfið þar sem ghettoið var áður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »
Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bayliner Trophy 5.6m Stórglæsilegur bátur
Báturinn er allur ný málaður og settir á hann mahogany listar. Kerra fylgir. Er ...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
Grand Cherokee Laredo árg. 2007 SÚPERTILBOÐ 2,100 þús.
Til sölu Grand Cherokee V6 3,7 sjálfskiptur árg. 2007 ekinn 84 þús.km. Dráttarbe...
 
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...