Kona særðist í bílsprengju á N-Írlandi

Kona slasaðist lítillega þegar bílsprengja tengd bifreið hennar sprakk í Belfast á Norður-Írlandi fyrr í dag. Konan er kærasta lögreglumanns sem starfar hjá norður-írsku lögreglunni og er því óttast að árásin sé upphafið á endurteknum ofbeldisverkum í landshlutanum.

Atvikið átti sér stað snemma í morgun, en sprengjan sprakk þegar hún ræsti bifreið sína fyrir utan heimili sitt. Konunni var ekið á nærliggjandi spítala til aðhlynningar og var útskrifuð að skoðun lokinni.

„Það er augljóst að það er fólk þarna úti í þjóðfélaginu í dag sem hefur það enn í hyggju að myrða fólk og meiða,“ er haft eftir Brian Maguire, yfirlögregluþjóni sem neitaði að nefna tiltekin samtök í því samhengi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hafði sprengjunni verið komið fyrir undir farþegasætinu, þannig að ljóst má vera að hefði einhver setið þar hefði sá hlotið lífshættuleg meiðsli.

„Sprengjan hefði raunverulega getað drepið einhvern eða valdið mjög alvarlegu líkamstjóni,“ segir Maguire.

Hann segir konuna ekki hafa nein bein tengsl við lögregluna, en rannsóknarlögreglumenn kanni nú hvort kærasti hennar, sem er starfandi lögreglumaður, hafi verið ætlað skotmark. Konan bjó skammt frá lögreglustöð í austurhluta Belfast.

Lögreglunni barst nýverið hótanir frá baráttusamtökum lýðveldissinna og í framhaldi var lögreglumönnum ráðlagt að skoða undir bifreiðar sínar í leit að sprengjum. Slíkar ráðstafanir voru algengar þá þrjá áratugi sem hatrömm deila stóð um sjálfstæði Norður-Írlands sem leiddi til dauða 3.500 manna.

Deilunni milli kaþólikka, sem óska eftir því að Norður-Írland verði hluti af sjálfstæðu Írlandi, og mótmælenda, sem vilja að Norður-Írland heyri undir Breta, lauk mestmegnis 1998 með friðarkomulagi sem kennt er við Föstudaginn langa.

Fyrr á þessu ári voru tveir hermenn og einn lögreglumaður drepnir og lýstu meðlimir baráttusamtaka lýðveldissinna drápunum á hendur sér.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »
Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
350 þús kr afsláttur.Palomino Colt 10/2007.
Palomino Colt 10/2007 Galvinseruð grind 2 Kúta Gasgrind Eldavél ísskápur miðstöð...
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside 12 " fellihýsi árg. 2003 til sölu. Borðkrókurinn er útdraganleg...
Langar þig að læra á mótorhjól?
Þá er tækifæri núna! Mótorhjólakennslan fer fram miðsvæðis í Reykjavík. Renta eh...
 
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...