Prestur ákærður fyrir að aðstoða flóttamenn
Sóknarprestur Brorsons kirkjunnar í Kaupmannahöfn, Per Ramsdal, verður hugsanlega ákærður fyrir að hjálpa til við að fela íraska flóttamenn. Samkvæmt lögum í Danmörku er bannað að aðstoða einstaklinga við að halda ólöglega til í landinu. Prestinum er einmitt gefið að sök að hafa veitt slíka aðstoð eftir að lögreglan handtók fjölda Íraka í kirkju hans um miðjan ágúst sl. Þetta kemur fram á vef danska dagblaðsins Politiken.
Hátt á þriðja hundrað Írökum hefur verið neitað um hæli í Danmörku og eiga yfir höfði sér að vera vísað úr landi. Fimmtíu Írakar leituðu skjóls í Brorsons kirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn, og töldu að sér væri óhætt þar. Um miðjan ágústmánuð réðist lögreglan inn í kirkjuna og handtóku fjölda Íraka. Stór hluti þeirra var síðan sendur úr landi til Norður-Íraks.
Ástæða þess að lögregluyfirvöld hyggjast ákæra Ramsdal má rekja til þess að eftir að lögreglan réðist inn í kirkjuna í ágúst sl. hafði blaðamaður danska dagblaðsins B.T. samband við Ramsdal og bauðst til þess að hjálpa prestinum að fela flóttamenn. Í upptöku af samtali þeirra kemur fram að presturinn gæti haft milligöngu um slíka hjálp. Upptakan er aðalsönnunargagn ákæruvaldsins.
„Við höfum ekki fundið neinar sannanir fyrir því að hann hafi í reynd hjálpað þeim að dveljast ólöglega í landinu, en út frá upptökunni metum við það sem svo að hann hafi reynt það,“ segir Henning Schmidt, yfirmaður hjá rannsóknarlögreglunni í Danmörku. „Nú þurfa lögfræðingar að meta hvort sönnunargögnin séu nógu góð. Ef þau reynast skotheld þá ákærum við hann,“ segir Schmidt.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 4. september 2009, Erlent Vill fangelsa prest fyrir að fela flóttamenn
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Erlent Danir slæm fyrirmynd
- Fimmtudagur, 13. ágúst 2009, Erlent 17 flóttamenn handteknir í Kaupmannahöfn
- Sunnudagur, 30. ágúst 2009, Erlent Deilt um atburðina í Brorsons kirkju
- Fimmtudagur, 13. ágúst 2009, Erlent Deilt um aðgerðir gegn flóttamönnum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































