Eitraði fyrir ástkonu sinni í von um fósturlát
Læknirinn reyndi m.a. að koma ofan í ástkonu sinni kaffi með uppleystu lyfi sem veldur fósturláti. Árni Sæberg
Breskur dómstóll hefur fundið Edward Erin sekan um að hafa reynt að eitra fyrir ástkonu sinni sem var ólétt eftir hann í von um að eitrið ylli því að hún missti barnið þeirra. Ætlunarverk læknisins tókst ekki, því ástkonan ól heilbrigt sveinbarn í september sl. Frá þessu er greint á vef breska dagblaðsins Guardian.
Edward Erin læknir og Bella Prowse læknaritari kynntust þegar þau störfuðu saman á St. Mary spítalanum í Paddington í London og tóku upp ástarsamband í lok árs 2007 þrátt fyrir að Erin væri kvæntur. Um mánuði seinna eða seint í janúar 2008 uppgötvaði Prowse að hún væri með barni og reyndi þá Erin í tvígang að fá hana til að fara í fóstureyðingu en hún vildi það ekki. Við réttarhöldin gaf hún m.a. þá skýringu að hún hefði árið 2002 farið í fóstureyðingu og alltaf séð eftir því og fundist hún hafa gert mistök sem hún vildi ekki endurtaka.
„Hann sagði að við gætum ekki eignast barnið. Hann væri ekki tilbúinn til að eignast barn. Hann tjáði mér að hann vildi eyða framtíðinni með mér og að hann elskaði mig. Hann sagði að hann hefði áhuga á að fara með mig í klettaklifur og á skíði og þetta myndi eyðileggja þau áform,“ sagði Prowse við réttarhöldin.
Að sögn Prowse tjáði Erin sér að veldi hún að eignast barn þeirra myndi það rústa lífi hans þar sem hann yrði að skipta um vinnustað. Erin sendi ástkonu sinni smáskilaboð. Eitt þeirra hljóðaði svo: „Ég er staddur í myrkviðum hugans mín elskuleg. Mig langar að deyja en það væri hins vegar sjálfselska.“
Í fyrra skiptið sem Prowse mætti ekki í fóstureyðinguna sem Erin hafði pantað handa henni brást hann illa við og grátbað ástkonu sína um að fara í fóstureyðingu. Í framhaldinu reyndi hann að byrla henni ólyfjan m.a. í tei, appelsínusafa og kaffi sem Erin færði ástkonu sinni. Prowse var hins vegar farið að gruna sitt þannig að hún drakk hvorki appelsínusafann eða kaffið heldur geymdi það og sendi til efnagreiningar.
Fram kom í máli Mickey Gallagher rannsóknarlögreglumanns við réttarhöldin að Erin hefði misnotað stöðu sína sem læknir. „Þetta mál snýst ekki um siðgæði, en tilefni rannsóknarinnar er vissulega mjög óvanalegt því þetta er aðeins annað mál sinnar tegundar sem ratar fyrir dómstólum á síðustu 40 árum,“ sagði Gallagher og tók fram að hugur hans væri hjá Prowse og barninu sem hún ól. „Sem betur fer tókst Erin ekki ætlunarverk sitt.“
Erin mun sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur í máli hans verður kveðinn upp þann 16. nóvember.




































