Ítalskar konur æfar út í Berlusconi

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. stækka

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu.

Um eitthundrað þúsund ítalskar konur hafa undirritað yfirlýsingu þar sem látin er í ljós gremja vegna móðgandi ummæla sem Silvio Berlusconi forsætisráðherra viðhafði um stjórnmálakonu í beinni sjónvarpsútsendingu.

Berlusconi sagði að konan, hin 58 ára gamla Rosy Bindi, byggi ekki yfir gáfum í hlutfalli við fegurð sína. Hann segir nú, að þetta hafi átt að vera brandari en ummælin hafa verið flokkuð sem karlremba.

Reiðin sem ummælin hafa valdið þykja vísbending um að nýfeminismi sé að skjóta rótum á Ítalíu þar sem íhaldssemi og forn viðhorf hafa verið viðtekin.

Aðrir segja að þetta sé aðeins eitt dæmi til viðbótar um færni Berlusconi til að móðga konur, hvort sem það væri ætlun hans eða ekki.

Í gær höfðu 97.000 konur skrifað undir reiðiskjalið til Berlusconi. Skoðanakannanir þykja benda til þess að ummælin umdeildu skaði hann eigi svo mjög; konur sem hafi stutt hann hingað til séu ýmsu vanar frá honum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »
Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Birkiplöntur með hnaus verð frá 2000 kr stk. Opið virka daga kl.13-18 , laugard....
NISSAN ALMERA ACENTA
Nissan Almera Acenta, 09/2005, ekinn 97 þús. Ssk., nýtt ...
Barnastóll á hjól
Mjög vandaður. Vottaður fyrir allt að 22 kg. Verð 6000 kr. Uppl. í síma 848...
PARSUN - UTANBORÐSMÓTORAR - GÆÐI Í GEGN
Eigum á lager á góðu verði eftirfarandi stærðir: 2,6 hp kr. 179.000 5 hp kr. ...
 
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
Ársfundur
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollv...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Auglýsing byggðakvóti
Tilkynningar
Auglýsing vegna úthlut...