Samkomulag í sjónmáli?

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur sent Írönum, Bandaríkjamönnum, Rússum og Frökkum uppkast að samkomulagi, sem miðar að því að draga úr áhyggjum alþjóðasamfélagsins af kjarnorkuáætlun Íran. IAEA lagði þetta til eftir viðræður í Vín. Stofnunin vill í síðasta lagi fá svör á föstudag.

Ekki liggur fyrir hvað stendur í samkomulaginu, en talið er að þar komi fram að Íranar flytji út úran sem verði síðan auðgað í Frakklandi og Rússlandi. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Aðalsamningamaður Írana í kjarnorkumálum hefur ekki tjáð sig um málið.

Auk Írana, Rússa, Frakka og Bandaríkjamanna tóku fulltrúar Sameinuðu þjóðanna þátt í viðræðunum.

Mohamed ElBaradei, yfirmaður IAEA, sagði við fréttamenn í Vín í Austurríki að hann væri bjartsýnn á framhaldið. Viðræðurnar hafi verið afar uppbyggilegar.

„Allir á fundinum reyndu að leggja hönd á plóg, horfa til framtíðar en ekki til fortíðar og reyndu að græða sár sem hafa ekki fengið að jafna sig í mörg ár.“

„Ég er búinn að dreifa uppkasti að samkomulagi, sem að mínum dómi, endurspeglar yfirvegaða leið fram á við.“

Heimildarmenn breska ríkisútvarpsins, sem starfa við rússneska kjarnorkuiðnaðinn, segja að samkomulagið snúist um það að Íranar sendi úran til fulltrúa IAEA, sem síðan sendi úranið til Rússa. Þeir muni síðan sjá um að auðga efnið.

Auðgað úran yrði svo aftur sent til IAEA sem myndu senda það svo til Frakklands, en Frakkar búi yfir tækni til að bæta við mikilvægum þáttum fyrir íranska kjarnakljúfinn.

Með þessu gætu Íranar fengið nægilega mikið af auðguðu úrani, sem rannsóknarkjarnakljúfur gæti notað. Magnið sé hins vegar ekki nægilega mikið til að búa til vopn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »
Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun

Egyptar kjósa sér forseta

07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
Í gær, 15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Birkiplöntur með hnaus verð frá 2000 kr stk. Opið virka daga kl.13-18 , laugard....
NISSAN ALMERA ACENTA
Nissan Almera Acenta, 09/2005, ekinn 97 þús. Ssk., nýtt ...
Barnastóll á hjól
Mjög vandaður. Vottaður fyrir allt að 22 kg. Verð 6000 kr. Uppl. í síma 848...
PARSUN - UTANBORÐSMÓTORAR - GÆÐI Í GEGN
Eigum á lager á góðu verði eftirfarandi stærðir: 2,6 hp kr. 179.000 5 hp kr. ...
 
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...